157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við vorum að hlýða á ræðu frá sönnum aðildarsinna sem vill ganga í Evrópusambandið. Ég veit satt best að segja ekki hvernig samningurinn þyrfti að líta út til að hv. þingmaður myndi hafna honum en ég ætla nú ekki að fara að gera henni upp þær skoðanir. Af því að hér var minnst á gjaldmiðlamál og stöðugleika og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands er rétt að rifja það upp að aðspurðir sögðu þeir fyrir nefndinni að krónan hefði verið stöðugri en evran síðustu misseri og í þó nokkur ár, svo það sé sagt.

Ég er með tvær spurningar. Hv. þingmaður hefur hér í dag talað talsvert mikið um leyniherbergi og gögnin. Nú spyr ég: Hefur hv. þingmaður skoðað gögnin og ef svo er, hvað stendur í þeim? Hin spurningin er, af því að hv. þingmaður hélt því hér fram í löngu máli að minni hlutinn stæði í vegi fyrir því að þjóðin fengi að greiða atkvæði: Með hvaða hætti hefur minni hlutinn staðið gegn því í þá þrjá og hálfa klukkutíma sem umræðan hefur staðið og ég held fimm ræður fluttar?