þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar og biðst forláts á því að hafa ekki svarað öllum spurningunum sem lagðar voru fyrir mig. Varðandi það hvernig minni hlutinn hefði betur getað gefið sig að efnislegri umræðu í utanríkismálanefnd, þá vil ég bara segja að þetta var allt mjög mikið spurning um formið. Frumkvæðið að því að gefa sig að því að geta lagt einhverjar línur og mögulega gefið út það spil gagnvart þjóðinni að það sé kannski bara eitthvert tækifæri í því að skoða góðan samning, það móment kom ekki upp í vinnu nefndarinnar eða í þeim umræðum sem við höfum staðið í hérna út á við. Það er á ábyrgð minni hlutans.
Varðandi það hvort það sé ekki gott að hafa krónuna til að bregðast við séríslenskum áföllum. Ísland er ekki eina landið sem lendir í náttúruhamförum. Ísland er hins vegar eitt af þeim löndum sem búa við „konstant“ hávaxtaumhverfi. Talandi um séríslensk áföll, við getum geymt þá umræðu þar til síðar.