157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður fór um víðan völl í sinni ræðu og það er hægt að ræða margt í henni en mig langar að staldra við tal hennar um óafturkræfar breytingar á íslenskri stjórnsýslu samhliða viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið. Það er örstutt síðan stjórnarmeirihlutinn þvertók fyrir að nokkrar breytingar yrðu gerðar í þeim efnum, örstutt. Engin aðlögun myndi eiga sér stað, bara kíkja í pakka. Nú er viðurkennt að slíkar breytingar verða en bætt við: óafturkræfar. Hvernig hefur það gengið í gegnum tíðina að minnka báknið eftir að það hefur einu sinni verið þanið út? Í því sambandi má nefna að í gögnum ESB um umsókn Íslands á sínum tíma kemur fram að stjórnsýsla Íslands sé allt of lítil til að ráða við þær skuldbindingar sem fylgdu inngöngu í sambandið og að til mikillar stofnanauppbyggingar þyrfti að koma til þess. Ég spyr því hv. þingmann: Hversu mikið þarf að þenja báknið út í komandi aðlögun?