þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir spurninguna. Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu sem er greinilega að verða æpandi vegna þess að ég kannast ekki við ummæli Evrópusambandsins eða framkvæmdastjórnarinnar um að íslensk stjórnsýsla sé of lítil til að geta tekist á við Evrópusambandsaðild. Ef við yrðum aðilar að Evrópusambandinu yrðum við litlu smærri en Malta sem er bara mjög áþekk okkur í fólksfjölda. Ég get þar af leiðandi ekki tjáð mig með ítarlegum hætti um þessi ummæli, ég þekki þau bara ekki. Íslensk stjórnsýsla er svo sannarlega í stakk búin til að takast á við það verkefni að fara í samningaviðræður, aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ef til aðildar kæmi þá myndum við sinna því betur að mörgu leyti vegna þess sem felst í því að vera í Evrópska efnahagssvæðinu vegna þess að það er mjög þunglamalegt ferli og það er ástæða fyrir því. Svo getur okkur greint á um hvort það væri til ábata fyrir íslenskt samfélag.