157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:17]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Það hefur lengi verið ljóst að stjórnsýsla Íslands er ekki tilbúin til að ráða við þær skuldbindingar sem fylgja inngöngu í sambandið. Það þarf að þenja báknið vel út og það er áhyggjuefni að stjórnarþingmenn, sem ákafir vilja komast inn í sambandið, geri sér ekki grein fyrir þessu og það er gott að fá það fram hér í pontu.

Það sem mig langar næst að víkja máli mínu að eru lágir vextir í Evrópu og hvers vegna þeir eru lágir. Kannski er hv. þingmanni kunnugt um þetta, en hagvöxtur hefur verið lítill í Evrópu. Öldrun samfélagsins er önnur ástæða, lítil framleiðniaukning, minni fjárfestingarþörf og mikið af skuldsettum ríkjum innan evrusvæðisins þannig að Seðlabanki Evrópu getur ekki haldið uppi háum vöxtum, þá myndu ríki fara á hausinn. Þetta er staðfest bæði af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og OECD. Framleiðnivöxtur í Evrópu hefur verið hægari en í Bandaríkjunum síðustu 15–20 árin, sérstaklega í tækni og nýsköpun, arðsemi fjárfestinga minni, minni eftirspurn eftir lánsfé og þess vegna eru vextir lægri. (Forseti hringir.) Er þessi staða eitthvað sem hv. þingmaður vill að Ísland gangi inn í? Er þessi staða eitthvað sem hv. þingmaður kallar eftir á Íslandi?