þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Mér finnst alltaf jafn kostulegt þegar hér koma fulltrúar sérstaklega frá Sjálfstæðisflokknum og fara að telja upp allt sem er á niðurleið í Evrópusambandinu og ætla að heimfæra það á að þannig myndi þetta bara verða á Íslandi, fæðingartíðni myndi lækka og þar fram eftir götunum. Ég tala nú ekki um þegar verið er að tala um hluti sem varða samkeppnishæfni sem eru svona breiðu línurnar. Við erum á Evrópska efnahagssvæðinu og það er svæði sem er mjög samþætt okkur nú þegar þannig að það verður ekkert hjá því komist að segja: Við erum að mjög mörgu leyti þátttakendur í þessu svæði og göngum í takt við okkar helstu samstarfsríki.
Varðandi efnahagslegar aðstæður á Íslandi versus í Evrópu. Nei, þetta er ekki eitthvert draumaland og allt er þar fullkomið og hér myndi verða betra veður, svo ég vitni í algengan brandara sem er hafður í flimtingum hér. En já, það eru tækifæri í því að útrýma gengisáhættu (Forseti hringir.) á Íslandi við okkar helstu viðskiptaríki vegna þess að það er það umhverfi sem mjög margir liðsmenn Sjálfstæðisflokksins búa við nú þegar og stórfyrirtæki hér á landi og þau vilja ekki breyta því.