þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við erum að ræða hérna ágæta þingsályktunartillögu. Í henni er lagt til að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 um hvort halda skuli áfram viðræðum Íslands um aðild að ESB. Með þessu er lagt til að íslenska þjóðin fái í fyrsta sinn að taka afstöðu með beinum hætti um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB. Ég tel að þjóðaratkvæðagreiðsla muni þjóna því lýðræðislega markmiði að íslensku þjóðinni verði gefinn kostur á að taka afstöðu til þess hvort kanna eigi kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið með því að hefja aðildarviðræðurnar og þeim ljúki vonandi með samningi sem færi þá í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég tek undir þau sjónarmið og legg mikla áherslu á að verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar sú að aðildarviðræður fari fram verði þeim sinnt ötullega með skýra hagsmunagæslu Íslands að leiðarljósi. Ísland hefur ágæta burði til að sinna aðildarviðræðum af myndugleika enda hefur Ísland yfir að búa öflugri stjórnsýslu, víðtækri reynslu af framkvæmd EES-samningsins sem og færum sérfræðingum á sviði Evrópuréttar og alþjóðasamstarfs. Ég mun síðar í minni ræðu víkja að mikilvægi nokkurra samningsmarkmiða Íslands.
Fari svo að meiri hluti þeirra sem greiða atkvæði styðji að hafnar verði aftur aðildarviðræður við ESB er umboð íslensku þjóðarinnar til stjórnvalda einskorðað við aðildarviðræðurnar sjálfar. Aðildarferlið færi jafnframt fram án þess að það myndi leiða af sér skuldbindingar af hálfu Íslands gagnvart ESB sem tækju gildi áður en samningurinn tæki gildi. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla sem hér er lögð til lýtur eingöngu að því hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB að nýju. Í henni felst ekki afstaða til aðildar en ef samþykkt er að hefja viðræðurnar að nýju og ef þær leiða til samnings verður hann lagður fyrir þjóðina til endanlegrar samþykktar eða synjunar. Það verður þá fyrst í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem kosið verður um það hvort Ísland skuli eiga aðild að ESB. Að mínu mati er ferlið sem hér er lagt til eins lýðræðislegt og hugsast getur.
Virðulegi forseti. Aðildarviðræður við ESB eru í senn stórt og viðamikið verkefni sem varðar hagsmuni Íslands og utanríkisstefnu til langframa. Velji þjóðin að hefja að nýju viðræður verður þannig lagður traustur lýðræðislegur grunnur að aðildarviðræðum Íslands án þess þó að í þeirri ákvörðun verði Ísland skuldbundið til að gera óafturkræfar breytingar á íslenskri stjórnsýslu eða stjórnskipan og starfsskilyrðum í atvinnugreinum sem kunna að taka breytingum við hugsanlega inngöngu Íslands í ESB. Það er alveg skýrt — og ég endurtek það enn og aftur — að til að Ísland gangi í ESB þarf samningur að nást og það þarf að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þann samning en það sem er lagt til núna er hvort fara eigi af stað í þessar aðildarviðræður og það ætlum við að ákveða sem þjóð 29. ágúst næstkomandi.
Virðulegur forseti. Við vinnslu málsins skoðaði meiri hluti utanríkismálanefndar þær áherslur sem lagðar voru fram sem samningsmarkmið á sínum tíma. Við fórum vel yfir hvern þátt og uppfærðum eðlilega miðað við þá stöðu mála sem er á Íslandi í dag. Eðli málsins samkvæmt myndi aðild Íslands að ESB hafa í för með sér breytingar á íslenskri löggjöf þar sem Ísland gengi í samstarf með fyrirliggjandi reglum. Hins vegar eru ýmis dæmi um að reglum sambandsins hafi verið breytt við inngöngu nýrra ríkja vegna sérstöðu þeirra og meginhagsmuna. Meiri hluti utanríkismálanefndar taldi mikilvægt að koma því á framfæri að komi til þess að aðildarviðræðum verði haldið áfram verði lögð áhersla á sérstöðu og meginhagsmuni Íslands þar að lútandi sem fram koma í áliti meiri hlutans. Engar breytingar á löggjöf tækju gildi fyrr en eftir að samningur var samþykktur.
Virðulegur forseti. Tímans vegna næ ég ekki að fara yfir öll samningsmarkmiðin sem koma fram í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar en ætla að nefna hérna nokkur dæmi. Byrjum á orkumálunum. Hvað varðar skipulag orkumarkaðar er staðan sambærileg við það sem gerist á Norðurlöndunum og myndi aðild ekki hafa í för með sér viðbótarbreytingar umfram EES-samninginn, t.d. hvað varðar umgjörð og rekstur Landsvirkjunar. Umræddar reglur lúta ekki að eignarhaldi auðlindanna eða hvernig þær eru nýttar, innan ramma umhverfisreglna, eða hvernig andvirði þeirra er ráðstafað. Þannig kemur ekki annað fram en að forræði þjóðarinnar yfir auðlindunum í efnahagslögsögu Íslands, á jörðu og í hafsbotni, verði fulltryggt. Meiri hlutinn ítrekar líka sem fyrr mikilvægi þess að sérstöðu Íslands, sem viðurkennd hefur verið með aðlögun að regluverki á grunni EES-samningsins, verði haldið til haga í samningaviðræðum þar sem hagsmunir Íslands kalla enn á slíkt; t.d. yrði ákvörðun um lagningu sæstrengs fyrir raforku ávallt íslensk ákvörðun, eins og mælt er fyrir í lögum, enda svo samtvinnuð ákvörðunum um nýtingu orkuauðlindanna sjálfra.
Virðulegur forseti. Sjávarútvegsmálin eru stærsta hagsmunamál Íslands þegar kemur að mögulegri aðild að ESB, enda um að ræða eina af meginstoðum íslensks efnahagslífs og grundvöll að búsetu hringinn í kringum landið. Því vil ég leggja sérstaka áherslu á það að fæðu- og matvælaöryggi er þjóðaröryggismál og vísa í því sambandi til 7. gr. þjóðaröryggisstefnu Íslands sem fjallar um vernd og órofa virkni mikilvægra innviða og styrkingu áfallaþols samfélagsins. Það er einnig mikilvægt að árétta þær reglur sem gilda munu um fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi en EES-samningurinn hefur tryggt Íslandi undanþágu frá meginreglu ESB-réttar um fjárfestingafrelsi í tilviki sjávarútvegs. Það er raunhæf leið til að tryggja forræði Íslands yfir sjávarauðlindinni innan íslenskrar fiskveiðilögsögu að lögsagan verði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði. Þannig verði réttindi ekki til staðar fyrir erlend fiskveiðiskip til veiða innan íslenskrar fiskveiðilögsögu úr staðbundnum íslenskum stofnun. Meginregla ESB um hlutfallslegan stöðugleika felur þetta í raun í sér nú en fyllsta ástæða er til að festa það enn frekar í sessi í aðildarsamningi.
Virðulegur forseti. Mikilvægt er að búa svo um hnútana ef til aðildar Íslands að ESB kæmi að áfram verði tryggt að hér yrði hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis, matvælaöryggis og byggðasjónarmiða. Þar yrði lykilatriði að stuðningurinn verði nægjanlegur til að vega upp erfiðar framleiðsluaðstæður samanborið við annars staðar innan ESB. Á hinn bóginn myndu verða breytingar á stuðningsforminu, m.a. þar sem gera verður ráð fyrir að tollvernd á landbúnaðarvörum frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB. Enda þótt sveigjanleiki við útfærslu landbúnaðarstuðnings innan sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB hafi aukist er ljóst að það myndi að óbreyttu ekki eitt og sér nægja til að bæta og mæta markmiðum á þessu sviði.
Til viðbótar þyrftu að koma sérstakar heimildir til að styðja við heimskautalandbúnað á Íslandi vegna erfiðra framleiðsluskilyrða. Í því sambandi mætti horfa til sérlausna Finna og Svía til að styðja sérstaklega við landbúnað á norðlægum slóðum. Það er því verkefnið í viðræðum að tryggja að fjárframlög og heimildir til stuðnings landbúnaðinum verði fullnægjandi til að viðhalda sambærilegum heildarstuðningi sem nú er að meðtalinni tollvernd. Þetta á við um allan landbúnað. Sérstaklega þarf að huga að hefðbundnum landbúnaði sem stuðlar að því að viðhalda blómlegri byggð um landið og að unnið verði að nýliðun í greininni. Tækifæri gætu falist í stuðningskerfi ESB fyrir dreifbýlisþróun þar sem það getur rennt styrkari stoðum undir búsetu og skapað aukinn sveigjanleika fyrir bændur um framleiðslu, mætt kostnaði við innleiðingu reglna og fjárfestingar og jafnframt rennt styrkari stoðum undir aðra starfsemi til lífsviðurværis. Vernd íslenskra dýrastofna og sjúkdómsstöðu er mikilvæg og með því að viðhalda varanlegri banni við innflutningi lifandi dýra næðum við að halda sérstöðu okkar í því samhengi með sama hætti og tryggt hefur verið í EES-samningnum hingað til. Það er alveg ljóst að fæðu- og matvælaöryggi er þjóðaröryggismál og sem fyrr vísa ég t.d. í 7. gr. þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland um vernd og órofa virkni mikilvægra innviða.
Virðulegur forseti. Tryggja þarf greiðan aðgang að því fjármagni sem er í boði innan byggðaáætlana ESB og annarra áætlana sem nýst gætu til þess að efla byggð um landið, þar með talið til að renna stoðum undir brothættar byggðir og til nýsköpunar á landsbyggðinni sem getur aukið fjölbreytni í atvinnutækifærum. Um er að ræða eitt þeirra sviða þar sem gera má ráð fyrir að verulegir fjármunir renni til baka til Íslands úr sjóðum ESB. Við munum leggja áherslu á sérstöðu Íslands og aðstæðum sem fela í sér áskoranir fyrir byggðaþróun verður haldið á lofti til að tryggja að viðeigandi fjármagn renni úr sjóðum sambandsins til stuðnings byggð í landinu. Reglur um náttúruvernd á Íslandi og innan ESB byggjast að miklu leyti á sameiginlegum alþjóðlegum skuldbindingum enda þótt útfærsla á framkvæmd hafi verið með ólíkum hætti þar sem taka þarf tillit til séreinkenna, náttúru og sögu. Nýlega öðlaðist gildi samningur Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni utan lögsögu ríkja, sem bæði Ísland og ESB eru aðilar að. Því þarf að leggja áherslu á að í viðræðunum verði hugað að séreinkennum Íslands með tilliti til náttúruverndar og að þau endurspegli löggjöf ESB með viðhlítandi hætti.
Í þeim gögnum sem nefndin fékk frá utanríkisráðuneytinu kemur m.a. fram að stærsta þróun á sviði umhverfis- og loftslagsmála frá árinu 2013 hefur verið á sviði loftslagsmála. Loftslagslöggjöf ESB hefur ekki öll verið tekin upp hér á landi með sama hætti. Löggjöf er varðar ETS-kerfið hefur frá árinu 2008 verið hluti EES-samningsins. Öðru máli gegnir um löggjöf sem lýtur að samfélagslosun og losun frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt, sem hefur verið talin falla utan gildissviðs EES-samningsins, en þrátt fyrir það sömdu Ísland og Noregur við ESB um að taka þessar gerðir upp í bókun 31 við EES-samninginn árið 2019 sem hluta samkomulags um samstarf í loftslagsmálum. Í reynd framkvæmir Ísland því stærstan hluta loftslagslöggjafar ESB og stefna Íslands og ESB á sviði loftslagsmála byggist á sömu forsendum.
Þar sem Ísland er þegar þátttakandi í ETS-kerfinu á grundvelli EES-samningsins hefði aðild að ESB takmörkuð áhrif á þátttöku í kerfinu að öðru leyti en því að Ísland hefði aðkomu að lagasetningarferlinu þegar breytingar eru gerðar á kerfinu. Fyrir liggur að Ísland hefur sérstakra hagsmuna að gæta vegna þróunar ETS-kerfisins, sérstaklega er varðar millilandaflug. Því þarf, þegar kemur að löggjöf ESB á sviði loftslags- og orkumála, að gefa sérstakan gaum að sérstöðu Íslands vegna þess hve stór hluti orkunotkunar byggist á endurnýjanlegum orkugjöfum. Myndi það m.a. endurspeglast í framlagi Íslands vegna sameiginlegs markmiðs ESB gagnvart Parísarsamningnum. Þá skiptir miklu að lega landsins leiðir til mjög þröngra kosta þegar kemur að alþjóðlegum samgöngum en þær eru hluti af öryggi landsins og mikilvægt að þetta atriði verði greint við mótun samningsafstöðu í kaflanum. Því verður að leggja áherslu á að tekið verði tillit til hagsmuna Íslands og sérstöðu landsins; m.a. er mikilvægt að tryggja að ETS-kerfið hafi ekki neikvæð áhrif á tíðni flugsamgangna til og frá Íslandi.
Virðulegi forseti. Miklar vendingar hafa orðið í öryggis- og varnarmálum síðan umsókn frá 2009 var gerð og hefur samstarf ESB og Íslands aukist á þessu sviði. Utanríkismálanefnd kynnti sér hvaða áhrif aðild Íslands að ESB gæti haft á öryggis- og varnarmál og í því skyni óskaði nefndin eftir minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu sem hluta af ítarlegri upplýsingabeiðni sem samþykkt var 27. mars síðastliðinn. Með aðild að ESB er Ísland þátttakandi í sameiginlegri stefnu sambandsins á sviði öryggis- og varnarmála sem og því samstarfi og stofnanakerfi sem hefur þróast hratt á þessu sviði á undanförnum árum. Sérstaða Íslands sem herlausrar og vopnlausrar þjóðar verður áfram tryggð. Hugsanleg aðild Íslands að ESB mun undir engum kringumstæðum leiða til stofnunar íslensks hers eða koma á herskyldu íslenskra ríkisborgara. Þá myndi hugsanleg aðild ekki fela í sér þátttöku Íslands í stofnum erlends herafla. Aðild að ESB breytir því ekki að Ísland mótar eigin stefnu í öryggis- og varnarmálum, ákvarðanir í öryggis- og varnarmálum innan ESB krefjast einróma samþykkis og ekki er hægt að þvinga aðildarríki til þátttöku í hernaðaraðgerðum eða öðrum varnar- og öryggistengdum verkefnum. Þvert á móti hefur hvert aðildarríki sem fullvalda þjóð forræði yfir eigin öryggis- og varnarmálum.
Virðulegur forseti. Þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram 29. ágúst í haust mun ég segja já.