þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og mér finnst gott að hv. þingmaður reyni að ræða þetta efnislega. Ég vil spyrja hann um tvennt. Það er nýtt tal hjá stjórnarliðum að það sé búið að viðurkenna að við erum að fara í aðlögun. Þess vegna fengum við nú þúsundir milljóna. Það er samningur, sem er þá væntanlega í gildi enn þá frá tíð Jóhönnustjórnarinnar, um hvernig framkvæmdastjórnin getur stýrt því hvernig á að aðlaga íslenskt kerfi, stjórnkerfi og annað slíkt og styrkir stundum. Hv. þingmaður segir að það sé ekki óafturkræft. En t.d. eins og tollurinn, það kemur fram í skýrslum að það þurfti að kaupa nýtt tölvukerfi upp á 3,7 milljarða, á verðlagi þessa árs, og fjölga starfsmönnum upp á nokkur hundruð. Af hálfu Evrópusambandsins er farið fram á að við klárum þetta áður en greidd eru atkvæði um samninginn. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að það sé verið að eyða peningum í tóma þvælu og það væri svolítið ves að vinda ofan af þessu og segja öllum þessum tollvörðum upp, bara svo eitt dæmi sé tekið en það er mjög margt annað? Síðan er annað, loksins kom fram í umræðunni að hv. þm. Pawel Bartoszek viðurkenndi það, og það kemur fram í meirihlutaálitinu, að forræðið yfir sjávarútvegsmálum fer til Brussel við aðild. Nú er einhver punktstaða og hlutir munu breytast en valdið í sjávarútvegsmálum mun fara frá Íslandi, eins og í mörgum öðrum málaflokkum, til Brussel. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af þessu? Það er ekkert smá sem við höfðum fyrir því að fá forræði yfir okkar sjávarútvegsmálum og stýra þeim 100%. (Forseti hringir.) Ég veit að hv. þingmaður vill örugglega reyna að horfa á allt það sem gæti gerst en hv. þingmaður á það sameiginlegt með mér að við sjáum ekki allt fyrir, ekki næstu tugi eða hundruð árin.