157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:36]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór fyrir ágætt andsvar. Varðandi fyrri spurninguna, um breytingu á styrkjum og kröfur, þá veit ég ekki til þess að það hafi verið settar fram einhverjar kröfur á okkur um að við yrðum að afgreiða eitthvað út af þjóðaratkvæðagreiðslunni og fyrir þann tíma, það eru nýjar fréttir fyrir mig alla vega. Aftur á móti eru ýmis verkefni í gangi sem snúa að samstarfi Íslands og Evrópusambandsins almennt í gegnum EES-samninginn og kröfur á okkur þar í mörgum málum eins og öðrum. Það er ekkert nýtt og tilheyrir ekki þessu í sjálfu sér. Ég hef ekki orðið var við það a.m.k. Þegar kemur að sjávarútveginum og forræði hans þá held ég að ég hafi verið nokkuð skýr með það í minni ræðu hver þau markmið eru sem við viljum setja og koma fram einmitt í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar og snúa að því að skilgreina fiskveiðilögsöguna með þeim hætti að við höfum yfir henni stjórn. Ég hlustaði á ræðu hv. þm. Pawel Bartoszek í dag og ég skildi hann ekki þannig að hann væri að fullyrða að stjórn fiskveiðilögsögunnar færi til Brussel. Ég held að það hafi verið oftúlkun á hans orðum en hann getur betur svarað fyrir það sjálfur. Markmiðin eru skýr í mínum huga og ég nefndi, eins og fram kom í ræðu minni, bara örfá dæmi um þau og markmiðið um sjávarútveginn var eitt þeirra sem ég nefndi, hvernig við sjáum fyrir okkur að setja sem samningsmarkmið að við höldum okkar yfirráðum. Við verðum auðvitað sem aðilar að ESB, ef til þess kæmi, í samstarfi og lútum að mörgu leyti sameiginlegri stjórn mjög margra en við erum þátttakendur í þeirri stjórn þannig að við erum hluti af því stjórnkerfi sem hv. þingmaður vísar til.