þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en hv. þingmaður verður að vera aðeins skýrari. Hv. þingmaður sem situr í utanríkismálanefnd getur ekki sagt að — það getur ekki verið, það er útilokað að þingmenn í stjórnarmeirihlutanum hafi ekki kynnt sér það. Það er ekkert óeðlilegt að það sé krafa Evrópusambandsins að búið sé að aðlaga hlutina áður en menn ganga inn og að það sé gert áður en greidd eru atkvæði í seinni atkvæðagreiðslunni. Ef menn fara í aðildarviðræður þá byrja menn aðlögun. Þess vegna koma aðlögunarstyrkirnir. Þess vegna komu einhverjar 5.000 eða 8.000 milljónir í tíð Jóhönnustjórnarinnar til að breyta kerfinu. Þetta er úr skýrslu utanríkisráðherra, ekki þegar ég var heldur Össur Skarphéðinsson, þá var krafa þeirra að tollkerfinu yrði breytt áður en þetta yrði klárað því þeir vilja auðvitað ekki að það sé búið að hleypa einhverjum inn og svo á eftir að vinna alla vinnuna. Hv. þingmaður og hæstv. stjórnin hljóta að þekkja þetta. Ég spyr aftur: Hefur þú engar áhyggjur af því ef við eyðum og spennum í einhverja tóma þvælu og við förum síðan ekki inn að það verði erfitt að vinda ofan af þessu og allur peningurinn fari út í loftið? Tollkerfi Evrópusambandsins er engin útflutningsvara, ég get lofað þér því. Bíddu, en eruð þið að fara út úr því núna, eruð þið að halda því fram núna að Ísland verði ekki aðili að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Hv. þm. Pawel Bartoszek var mjög skýr á þessu áðan og ég gekk á hann tvisvar og það fór ekkert á milli mála, enda vitum við það öll. Er það ekki alveg á hreinu að það er enginn svo bláeygur að hann haldi að við verðum ekki aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Það sem ég segi er að þegar þú ert búinn að færa völdin til Brussel, hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af sameiginlegu landbúnaðarstefnunni, sameiginlegu viðskiptastefnunni, sjávarútvegsstefnunni? (Forseti hringir.) Hv. þingmaður segir að sjávarútvegsmálin séu mikilvægasti málaflokkurinn. (Forseti hringir.) Hefur þú engar áhyggjur af því þegar við færum völdin til Brussel til allrar framtíðar, nema við göngum út sem verður mjög erfitt? Líður þér ekkert illa yfir því? Hefur þú engar áhyggjur af því að útlendingarnir fari kannski ekkert mjög vel með þetta?