þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir hans seinna andsvar og ég verð að biðjast afsökunar, ég misheyrði bara það sem hann sagði. Þegar hann var að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu hélt ég að hann ætti við þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er til umræðu en ekki einhverja sem er í framtíðinni. Og jú, það er alveg ljóst að þegar að því kemur að við göngum inn í Evrópusambandið, ef svo fer, þá verður auðvitað að vera búið að aðlaga ýmislegt í kerfinu, m.a. tollamálin og allt það. Það er alveg rétt hjá þingmanninum. Ég hef aftur á móti engar sérstakar áhyggjur af því. Það er verkefni sem kemur eftir næsta skref, að fara í samningaviðræður og síðan á eftir að fara í gegnum, eins og þingmaðurinn veit, bæði seinni þjóðaratkvæðagreiðslu og fleira.
Þegar kemur að sjávarútveginum þá kemur fram í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar að við lítum svo á að það verði settur sem ákveðinn frumréttur að við höfum ákveðinn yfirráðarétt yfir okkar auðlind, sjávarútveginum. Í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni er sveigjanleiki og mismunandi lausnir. Hún er ekki bara eitthvert eitt kerfi. Það er mjög margt í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni sem fellur mjög vel að okkar kerfi, t.d. varðandi vernd fiskstofna og ýmislegt þarna sem er jákvætt. Við horfum á þetta þannig, eins og fram kemur í meirihlutaálitinu, að þarna verði settur fram frumréttur í þessu máli sem muni tryggja ákveðna stjórn okkar en auðvitað erum við hluti af sameiginlegu verkefni.