þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég veitti því athygli að þar kom fram, ásamt auðvitað mörgu öðru, og hv. þingmaður vék að því sem stundum er kallað heimskautalandbúnaður eða styrkjakerfi Evrópusambandsins handa landbúnaði sem stundaður er norðan 62. breiddargráðu og nefndi þar bæði Svía og Finna. Hins vegar saknaði ég þess að hv. þingmaður fór ekkert nánar út í þær undanþágur því í raun og veru er ekki um varanlegar undanþágur að ræða á stofnsáttmála sambandsins. Því leikur mér forvitni á að vita hvort hv. þingmanni er kunnugt um — svo við notum rétt orð, þetta eru í raun og veru sérlausnir en ekki varanlegar undanþágur frá stofnsáttmálum. Á því er umtalsverður munur, í raun og veru reginmunur. Er hv. þingmanni kunnugt um hvenær þessar sérlausnir eru á dagsetningu? Þær eru dagsettar sem er enn ein vísbendingin um að þetta sé ekkert varanlegt. Svo langar mig líka að spyrja hv. þingmann að því hvort honum sé kunnugt um hvernig, til að mynda innan þessara sérlausna, finnskum landbúnaði norðan 62. breiddargráðu hefur reitt af síðan þessi sérlausn var veitt.