þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla að leggja áherslu á að þegar við erum að fjalla hér um landbúnaðinn þá er ég að fjalla um þau samningsmarkmið og þær kröfur sem meiri hluti utanríkismálanefndar setti fram í sínu nefndaráliti um hvernig við ætlum að ganga til þessara samningaviðræðna. Ég tók, eins og meiri hlutinn gerir í sínu áliti, Svíþjóð og Finnland sem dæmi. Þegar kemur að því að við förum í þessar samningaviðræður — aftur, eins og ég segi, þegar og ef — þá er það þetta sem við ætlum að hafa sem áttavitann okkar í því. Hvort það verði farin nákvæmlega sama leið og Svíar og Finnar fóru — ég nefndi sem dæmi að þeir fengu ákveðnar sérlausnir.
Hvernig þessu hefur reitt af er örugglega mjög misjafnt. Við sjáum það bara á nýlegum könnunum hversu stór hluti finnskra bænda er hlynntur því að vera í Evrópusambandinu og finnst að þeirra tilveru sé betur borgið innan þess en utan. Það segir okkur alla vega einhverja sögu. Við erum að horfa á sérstöðu Íslands og ég held að samanburður við Finna og Svía, þótt ég hafi nefnt það hér sem dæmi, verði aldrei tæmandi fyrir þær lausnir sem hugsanlega væri hægt að finna fyrir íslenskan landbúnað á þessu sviði. Það er margt undir í þessu en ég er fyrst og fremst að tala um þau markmið sem við erum að setja okkur í þessu. Ég held að ég og hv. þingmaður, herra forseti, séum meira sammála um mikilvægi íslenska landbúnaðarins og að ef til samnings kemur við Evrópusambandið þá sé vegur hans tryggður. Ég held að þar séum við sammála.