157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:46]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var um margt ágætt en kom þó ekki við þeim tveimur grundvallarspurningum sem ég lagði fram. Önnur varðar dagsetninguna, hvort hv. þingmanni væri kunnugt um það hvenær þær sérlausnir renni út fyrir Finna og Svía. Ég get upplýst hv. þingmann um að það er annars vegar árið 2028 og hins vegar árið 2029. Það er stutt í það. Ef við horfum til hliðsjónar af dæmum frá Írum varðandi fiskveiðarnar þá er rétt að minna á að það er einhliða ákvörðun Evrópusambandsins hvort þær sérlausnir verði framlengdar. Það er ekki samningsatriði.

Varðandi hina spurninguna um samdráttinn á svæðinu, óháð öllum skoðanakönnunum, þá hefur a.m.k. í Finnlandi samdrátturinn á svæðinu norðan 62. breiddargráðu numið u.þ.b. 33%. Það getur vel verið að þeir sem eftir standa séu ánægðir. Hinir eru flúnir. Hinir eru farnir, hv. þingmaður. Ánægjan sem hv. þingmaður vísar til í skoðanakönnunum; ég rengi ekki hv. þingmann en mér þykir þetta þó nokkuð sérstakt þar sem við höfum horft upp á gríðarleg mótmæli í allan vetur, hv. þm. Víðir Reynisson, hjá evrópskum bændum yfir því að Evrópusambandinu hafi mistekist að verja sína bændur. Við sjáum þetta í fréttum, reyndar er lítið gert af því að flytja þessar fréttir hér á landi og alls ekkert í ríkissjónvarpinu eða nánast ekkert. En við höfum horft á fréttaflutning af þessu í allan vetur, hvernig evrópskir bændur hafa verið að mótmæla því að Evrópusambandinu hafi mistekist að verja sinn landbúnað.

Síðan velti ég fyrir mér, af því að ég veit að hv. þm. Víðir Reynisson deilir því með mér, og það kom beinlínis fram í andsvari hans að við höfum áhuga fyrir því að íslenskum landbúnaði vegni vel, að eins og hefur komið fram, m.a. í máli hv. þingmanns Pawels Bartoszek, (Forseti hringir.) í viðtali sem ég hlustaði á áðan í podcast-þætti, þá liggur það fyrir að við verðum nettógreiðendur. Við erum þá fullfærir um að styrkja íslenskan landbúnað án þess að ganga inn í ESB, vænti ég, og spyr hv. þingmann hvort hann deili þeirri skoðun með mér.