157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:49]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég var að reyna að fletta þessum dagsetningum upp og leitaði til mér fróðari manna í því; þessar undanþágur sem eru tengdar Finnum og Svíum eru settar 1994 og við getum ekki séð í fljótu bragði að það séu einhverjar lokadagsetningar á því heldur séu þetta varanlegar undanþágur sem þeir hafa í þessu samhengi. Ég held að ég sé vonandi að fara með rétt mál um að þetta sé ekki rétt hjá þingmanninum að dagsetningarnar séu að renna út á næstu tveimur, þremur árum.

Varðandi landbúnaðinn og mikilvægi hans þá eru í markmiðunum fleiri atriði sem kannski koma ekki fram í andsvari hv. þingmanns sem ég tel mikilvægt að hnykkja á þegar við ræðum þetta, þ.e. vernd innlendra dýrastofna og sjúkdómastöðu sem er gríðarlega mikilvægur þáttur í þessu. Við erum nú þegar með undanþágu í EES-samningnum og mjög mikilvægt fyrir okkur að halda því á lofti að við tryggjum það áfram í samningaviðræðum þegar þar að kemur.

Enn og aftur: Ég er viss um það að við erum sammála, ég og hv. þingmaður, herra forseti, um það að tryggja landbúnaðinum brautargengi í samningaviðræðum; tryggja það að hér sé fjölbreytt starfsemi um allt land. Það veitir ekki af því vegna þess að landbúnaðurinn hefur átt undir verulegu höggi að sækja síðustu ár á Íslandi.