157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:51]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Við erum hér í síðari umræðu um þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla hinn 29. ágúst næstkomandi, þar sem þjóðin verði spurð hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Hér er því ekki verið að biðja þjóðina að taka afstöðu til þess hvort Ísland skuli ganga í Evrópusambandið. Ríkisstjórnin hefur hins vegar boðað að samþykki þjóðin að viðræður hefjist á ný, verði hugsanlegur samningur að loknum þeim viðræðum einnig borinn undir þjóðina. Þjóðin mun því alltaf hafa lokaorðið í þessu stóra og mikilvæga máli.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá því í desember 2024 er tekið fram að þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný fari fram eigi síðan en árið 2027. Þótt Flokkur fólksins sé mótfallinn aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur hann allt frá upphafi mælt fyrir auknu beinu lýðræði, að þjóðin fái að segja álit sitt á öllum meiri háttar málum sem varða framtíðarhagsmuni hennar.

Því hefur verið haldið fram af sumum andstæðingum þessarar tillögu að hún sé til þess fallin að kljúfa þjóðina. Þessi málflutingur gengur ekki alveg upp því þjóðin er nú þegar klofin í afstöðu sinni til þessa máls og hefur verið það áratugum saman. Í aðdraganda þess að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 var hart tekist á um málið hér á Alþingi. Bjarni Benediktsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, lögðu fram breytingartillögu við þingsályktunartillögu þáverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að viðræður skyldu teknar upp við Evrópusambandið. Í breytingartillögunni segir með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland skuli sækja um aðild að Evrópusambandinu. Skal þjóðaratkvæðagreiðslan fara fram hið allra fyrsta og eigi síðar en innan þriggja mánaða frá samþykkt tillögu þessarar.

Verði aðildarumsókn samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu skal ríkisstjórnin leggja inn umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu.”

Þarna lagði forysta Sjálfstæðisflokksins sem sagt til að farin yrði sama leið og núverandi ríkisstjórn leggur til.

Í öðru lagi lögðu þáverandi formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins til, með leyfi forseta:

„Náist aðildarsamningur milli Íslands og Evrópusambandsins skal ríkisstjórnin þegar í stað ráðast í að gera nauðsynlegar breytingar á stjórnarskrá, og eftir atvikum öðrum lögum, sem af aðild leiðir.

Að því loknu skal aðildarsamningurinn borinn undir Alþingi til staðfestingar og að henni fenginni skal ríkisstjórnin efna til bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um væntanlegan aðildarsamning.”

Þetta er sömuleiðis nákvæmlega það sem núverandi ríkisstjórn hefur boðað.

Flokkur fólksins var ekki til á þessum tíma og fékk ekki kjörna þingmenn fyrr en í kosningunum 2017. En breytingartillagan sem forysta Sjálfstæðisflokksins lagði fram hér á Alþingi árið 2009 er algerlega í anda stefnu Flokks fólksins um að þjóðin fái að ráða ferðinni í svo stóru og mikilvægu máli. Breytingartillagan var illu heilli felld og þess vegna var farið í aðildarviðræður án þess að spyrja þjóðina fyrst álits og viðræðurnar runnu síðan út í sandinn eftir kosningarnar 2013. Allir þáverandi sextán þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu því atkvæði að þjóðin yrði spurð hvort hefja ætti viðræðurnar. Þeirra á meðal eru hv. núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson og Jón Gunnarsson. Sjö af níu þingmönnum Framsóknarflokksins greiddu þessari tillögu atkvæði sitt, þeirra á meðal Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þáverandi formaður Framsóknarflokksins og núverandi formaður Miðflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Þessir hv. þingmenn töldu þá eðlilegt að þjóðin fengi að ráða því hvort viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu skyldu teknar upp. Nú hins vegar finna þessir hv. þingmenn sams konar tillögu flest til foráttu og kjósa að slá ryki í augu kjósenda með fullyrðingum um að tillagan sem við ræðum hér snúist um allt annað en segir í texta hennar. Þeir halda því fram að í raun sé verið að leggja fyrir þjóðina tillögu um að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er ekki rétt. Ég veit að þarna talar fólk þvert gegn betri vitund. Hvorki þingmenn né þjóðin eru svo skyni skroppin að þau skilji ekki texta þeirrar þingsályktunartillögu sem við ræðum nú og greiðum vonandi um atkvæði um bráðlega, svo þjóðaratkvæðagreiðslan geti farið fram á tilsettum tíma.

Stjórnmálaflokkunum hefur á undanförnum áratugum algerlega mistekist að leiða þetta mikilvæga mál til lykta. Umræðan hefur verið pikkföst í skotgrafahernaði. Við í Flokki fólksins treystum þjóðinni til að taka ákvörðun um framhaldið og við sem sitjum á Alþingi eigum að sýna þjóðinni þá virðingu að afgreiða þetta mál að lokinni yfirvegaðri umræðu. Ég ítreka það enn og aftur, svo það sé algerlega á hreinu að hálfu okkar í Flokki fólksins og félaga okkar í hinum stjórnarflokkunum, að við erum ekki að biðja þjóðina að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu, heldur hvort hefja eigi viðræður.

Við í Flokki fólksins erum andvíg aðild Íslands að Evrópusambandinu enda er sú afstaða í samræmi við stefnu flokksins, en við berum hins vegar virðingu fyrir þeirri staðreynd að margir eru á annarri skoðun en við og teljum því ekki rétt að Alþingi eitt ráði för í þessu stóra máli. Kjörorð okkar hefur frá upphafi verið „fólkið fyrst og svo allt hitt” og það á við í þessu mikilvæga máli sem varðar hagsmuni allrar þjóðarinnar til langrar framtíðar. Þess vegna styðjum við heils hugar að þjóðin verði spurð hvort hún vilji hefja aðildarviðræður eða ekki áður en lengra er haldið. Svo einfalt er það.

Winston Churchill sagði eitthvað á þá leið á breska þinginu árið 1947 að lýðræði væri versta stjórnarfyrirkomulagið — að frátöldu öllu öðru stjórnarfyrirkomulagi sem reynt hefði verið af og til. Í dag sjáum við með skýrum hætti hvernig einræðisvaldstjórnir í Rússlandi, Norður Kóreu, Íran og víðar koma fram við þegna sína og nágranna. Í dag stendur yfir blóðugasta styrjöld í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það er sótt að lýðræðinu úr öllum áttum og ill öfl stunda undirróður og skemmdarverk til að grafa undan lýðræðislega kjörnum fulltrúum í Evrópu. Við hér á Alþingi eigum að vera málsvarar lýðræðisins. Það skiptir því máli að fram fari upplýsandi umræða sem byggir á staðreyndum um öll mál og síðan komist að niðurstöðu með atkvæðagreiðslu. Það er kjarni lýðræðisins.

Á Íslandi er fulltrúalýðræði þar sem fulltrúar flokka og framboða eru kjörnir til Alþingis og síðan mynduð ríkisstjórn sem nýtur stuðnings meiri hluta þingmanna. Þeir flokkar sem nú hafa meiri hluta á Alþingi samþykktu í stjórnarsáttmála að þjóðin yrði spurð um það eigi síðar en á næsta ári, hvort taka ætti upp viðræður á ný við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Með þessari lýðræðislegu tillögu er verið að standa við þetta ákvæði stjórnarsáttmálans. Þegar tillagan hefur verið samþykkt fara vonandi fram uppbyggilegar og upplýsandi umræður í þjóðfélaginu um hvort skynsamlegt sé á þessum tímapunkti, við þær aðstæður sem nú ríkja bæði í innanlands- og utanríkismálum, að láta reyna á aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fari svo að meiri hluti þjóðarinnar styðji að aðildarviðræður verði teknar aftur upp þá — og fyrst þá — hefjast þær viðræður. Þar yrði að sjálfsögðu reynt að ná fram hagkvæmum niðurstöðum fyrir Ísland. Að viðræðum loknum hefur ríkisstjórnin síðan boðað að þjóðin hafi síðasta orðið í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Lýðræðið verður varla meira en þetta, að þjóðin ráði ferðinni á öllum stigum málsins.

Hafni þjóðin því hins vegar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið hefur í sjálfu sér ekkert breyst. Við yrðum áfram aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu, EES, og aðildarviðræður við Evrópusambandið væntanlega ekki á dagskrá um langa framtíð. Þá hefur þjóðin komist að lýðræðislegri niðurstöðu sem allir yrðu að sjálfsögðu að sætta sig við, rétt eins og ef niðurstaðan yrði á hinn veginn. Þetta er lýðræði í framkvæmd.

Hver sem niðurstaðan verður felur það hvorki í sér traust né vantraust á ríkisstjórnina. Það er ríkisstjórnin sem tók þá ákvörðun að spyrja þjóðina og hún mun að sjálfsögðu virða niðurstöðu þjóðarinnar, hver sem hún verður. Í stórum málum verðum stjórnmálamenn að treysta þjóðinni, þora að leita til hennar og virða niðurstöðuna. Það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera, öfugt við ríkisstjórnir undanfarinna ára sem hafa ekki treyst sér til að leggja málið fyrir þjóðina og virða vilja hennar. Við sem þjóð þurfum að fá niðurstöðu í þetta deilumál sem hefur klofið þjóðina áratugum saman.

Flokkur fólksins hefur ekki verið og er ekki fylgjandi aðild að Evrópusambandinu. En við erum ekki þjóðin og viljum kalla fram vilja hennar hvort sem hann er í samræmi við okkar vilja eða ekki. Ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður sú að fara í viðræður fá bæði andstæðingar aðildar og þau sem styðja aðild að óséðum samningi, svör við því hvort Ísland fái varanlegar undanþágur á mikilvægum sviðum eins og í sjávarútvegsmálum, landbúnaðar- og orkumálum. Og þá fær þjóðin að taka afstöðu til þess hvort henni finnst slíkur samningur þess virði að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Flokkur fólksins er andvígur aðild. Ef niðurstaðan verður sú að meiri hluti þjóðarinnar vilji að farið verði í aðildarviðræður verður ekki verra að hafa flokk í ríkisstjórn sem ekki er hlynntur aðild að sambandinu. Núna er hins vegar mikilvægast að þjóðin fá frið til að meta stöðuna og ákveða hvert skal halda. Sú ákvörðun mun liggja fyrir 29. ágúst.