þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður vísaði í mín fyrri störf og ég hvet hv. þingmann til að lesa atkvæðaskýringu mína þegar ég greiddi atkvæði með þessu en hún er nokkurn veginn á þessa leið: Þetta er fullkomlega galið því að það er ekki hægt og hefur aldrei verið gert áður að land sæki um aðild að Evrópusambandinu án þess að það sé meirihlutafylgi fyrir því og ríkisstjórn geti fylgt því eftir, það hefur aldrei verið gert. En ég var til í að gera allt til að reyna að koma í veg fyrir að Ísland færi í Evrópusambandið og þess vegna greiddi ég atkvæði með tillögunni. En förum aðeins nær í sögunni, fyrir síðustu kosningar og síðasta kjörtímabil. Hv. þingmaður er í flokki sem flutti sjö sinnum tillögu um afturköllun viðræðna án þess að spyrja þjóðina og svaraði á kosningaprófi að flokkurinn væri mótfallinn aðild. Nú er flokkurinn (Forseti hringir.) að setja aðild að Evrópusambandinu á dagskrá. Ef þjóðin segir já við þessu þá þurfum við að laga okkur að Evrópusambandinu. Þið sögðuð fyrir kosningar að þið væruð á móti aðild. Þið lögðuð fram tillögu sjö sinnum um að afturkalla aðild án þess að spyrja þjóðina. Hvað hefur breyst?