þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að viðurkenna að ég fór ekki og skoðaði atkvæðaskýringar. Hvað varðar afturköllun viðræðna þá var langt tímabil þar sem enginn vissi hvort viðræður væru í gangi eða ekki og hvort þetta væri í gildi eða ekki þannig að Flokkur fólksins taldi hreinlegast að það yrði bara með skýrum hætti afturkallað. Um það snerist það. En ég veit ekki af hverju hv. þingmaður talar alltaf eins og við séum að leggja til aðild að Evrópusambandinu. Ég veit ekki betur en að ég hafi komið því mjög skýrt á framfæri í þessari ræðu sem ég flutti áðan og það hefur oft komið fram og hjá fleirum hérna inni að þessi atkvæðagreiðsla snýst ekki um aðild að Evrópusambandinu og ég held að þingmaðurinn viti það alveg. Það er hins vegar verið að athuga hvort þjóðin vilji að farið verði í viðræður (Forseti hringir.) og um það snýst þetta, ekkert annað.