157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:06]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Er hv. þingmaður að halda því fram að þessi þingsályktunartillaga, sem gekk út á að spyrja ekki þjóðina heldur afturkalla eitthvað sem hv. þingmaður segir að hafi verið eitthvað óljóst, hafi bara verið einhver tæknileg lagahreinsun? Er hv. þingmaður að segja það? Hv. þingmenn Flokks fólksins sögðu: Við erum á móti Evrópusambandinu, það er enginn meira á móti aðild að Evrópusambandinu en við og þess vegna flytjum við þessa tillögu. Nú er komin einhver allt önnur skýring en það er hægt að fletta þessu upp í þingskjölum, lesa greinargerðina og sömuleiðis hlusta á hvað hv. þingmenn sögðu. Hv. þingmaður hlýtur að vita það að hv. þingmaður er að fara í vegferð til að koma Íslandi í Evrópusambandið. Hv. þingmaður er að styðja það að við séum að fara í vegferð til að koma Íslandi í Evrópusambandið. Er hv. þingmaður í alvöru að segja: Heyrðu, ég er nú ekkert að reyna að koma Íslandi í Evrópusambandið, (Forseti hringir.) ég er bara að reyna að koma á atkvæðagreiðslu um það að fá þjóðina til að segja já þannig að við getum sótt um aðild og byrjað að aðlaga okkur. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður virðist ekki vera á móti aðild að Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður er að gera allt til að koma Íslandi í Evrópusambandið með þessari vegferð.