157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:08]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég bara hafna því algerlega að ég sé að leggja til að farið verði í vegferð til að koma þjóðinni í Evrópusambandið. Við erum hins vegar að spyrja þjóðina hvort hún vilji leggja í þá vegferð. Um þetta hefur verið deilt í mörg ár, það virðast vera álíka stórir og mjög ákveðnir hópar báðum megin, á sitt hvorum endanum, og enginn veit hvar meiri hlutinn liggur og það er bara flott að við skulum komast að því í þessari atkvæðagreiðslu. Um það snýst þetta, ekkert annað. Ég er til í að bakka það upp vegna þess að ég tel ekki endilega sjálfsagt að öll þjóðin sé sammála því sem Flokkur fólksins segir og okkar áliti. Ég veit að margir eru það en ég veit líka að jafnvel bara þvert á flokka og í mörgum flokkum eru skiptar skoðanir um þetta og það á líka við hjá þjóðinni. Nú fær hún að segja sitt álit.