þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hef ekki heyrt neinn hér inni tala um að hann sé andvígur þjóðaratkvæðagreiðslu eða andvígur því að þjóðin fái að segja sitt álit á málinu. Við höfum verið að tala um að það þurfi upplýsingar og annað sem þurfi að liggja fyrir þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að hv. þingmaður kom því ítrekað að í sinni ræðu að hún væri á móti Evrópusambandinu og Flokkur fólksins væri á móti aðild að Evrópusambandinu: Hefur hv. þingmaður þá trú á því að við getum náð einhverjum samningum núna sem hv. þingmaður hafði ekki trú á fyrir kosningar að við gætum náð? Ég skil ekki alveg rökhugsunina í þessu. Mér finnst skrýtið að menn hafi trú á því að hægt sé að ná einhverjum samningi núna og séu tilbúnir að fara í þá vegferð og kíkja í pakkann en hafi samt verið á móti málinu frá upphafi af því að þeir hafa ekki trú á því að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins.