157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:11]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég sé þetta ekki sömu augum og hv. þingmaður. Við erum að spyrja þjóðina: Vill þjóðin þetta? Það er það sem spurningin snýst um. Ég er búin að segja þetta svo oft hérna að mér finnst ég vera farin að bergmála sjálfa mig. Þetta snýst um að spyrja þjóðina hvort hún vilji fara í þessa vegferð. Það eru skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar um þetta og það er bara allt í lagi. Það eru líka skiptar skoðanir meðal þjóðarinnar um þetta. Það eru jafnvel skiptar skoðanir innan margra flokka hér á þingi um það hvort við viljum fara í þessa vegferð. Leyfum þjóðinni að skera úr um það hvort það sé meirihlutavilji hjá þjóðinni fyrir því að leggja í þá vegferð að kanna hvað samningur gæti gefið okkur. Mitt álit er ekki aðalatriðið þar eða hvað mér finnst. Það er þjóðin sem skiptir máli. Ég er bara með eitt atkvæði eins og allir hinir og mun bara beita því. Ég veit það ekki, það kemur í ljós, ef það verður niðurstaðan, hvað kemur út úr samningnum.