þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég geri mér grein fyrir því að — nei, ég geri mér ekki grein fyrir því. Ég held að ég og hv. þingmaður séum sammála um að þetta mál eigi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og að þjóðin eigi að velja. Það sem ég var að reyna að fiska upp úr hv. þingmanni var afstaða Flokks fólksins og hvað hafi valdið því að breytingar hafa orðið á skoðun þess ágæta flokks, þess ágæta þingmanns sem ég er hér í andsvörum við, hvað þetta varðar. Það var nú loðið, en allt í lagi. Við getum deilt um varanlegar undanþágur eða ekki, en ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þær eru ekki til staðar. Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að ég hef ekki lesið stefnuskrá Flokks fólksins blaðsíðna á milli: Hverjar eru ástæður þess að Flokkur fólksins vill ekki ganga í Evrópusambandið? Við hvað er Flokkur fólksins hræddur í Evrópusambandinu? Það væri ágætt að fá upplýsingar um það.