þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hv. þingmanni er velkomið að nota svar við mínu andsvari til að segja hver ótti Flokks fólksins er við Evrópusambandið. En við skulum ekkert láta neitt blekkja okkur. Hv. þingmaður segir hér skýrt að Flokkur fólksins sé á móti aðild að Evrópusambandinu. Flokkur fólksins hefur ekkert verið að tala fyrir einhverri þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið fyrr en þau komust í ríkisstjórn. Þá gerðu þau samkomulag þar sem Flokkur fólksins fékk ýmis mál í gegn og Viðreisn fékk þetta mál. Það er bara svona einfalt. Þetta er ekki einhver lýðræðisást að Flokkur fólksins hafi alltaf talað fyrir einhvers konar þjóðaratkvæðagreiðslu heldur þvert á móti. Þau hafa verið alveg skýr í afstöðu sinni um að þau séu á móti aðild að Evrópusambandinu. Ég gef hv. þingmanni tækifæri á því að fara yfir rök Flokks fólksins fyrir því að vera á móti aðild að Evrópusambandinu.
Mig langar líka að spyrja hv. þingmann þegar að þessari þjóðaratkvæðagreiðslu kemur: Hvernig hyggst hv. þingmaður greiða atkvæði og hvernig hyggst Flokkur fólksins tala í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu?