157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:16]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það eru, eins og kannski í mörgum flokkum, bara örlítið skiptar skoðanir hjá Flokki fólksins um hvort einhverjir myndu vilja sjá hvað kæmi út úr samningi þó að þau hafi ekki verið hlynnt og séu ekki hlynnt Evrópusambandinu. Sumir myndu vilja fara í þá vegferð, aðrir ekki. Ég held að það sé ósköp víða sem fólk hugsar það og það séu svona, eins og ég hef sagt áður, skiptar skoðanir innan flokkanna. Ég þarf aðeins að hugsa það mál, svo ég segi bara alveg eins og er. Það getur verið að ég segi nei. Það getur líka verið að ég segi já. Ég þarf bara að hugsa það. Það eru rök með og á móti. Það getur verið á einhvern hátt spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu. Kannski er það það besta. (Forseti hringir.) En það eru leynilegar atkvæðagreiðslur á Íslandi.