þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og hreinskilnina og fyrir að vera heiðarleg um að hún viti ekki hvernig hún muni greiða atkvæði í þessari fyrirhuguðu þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er vissulega svo að það eru leynilegar atkvæðagreiðslur á Íslandi. En alveg eins og hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni þá búum við í lýðræðisríki og við búum líka við fulltrúalýðræði. Það var bara mjög nýlega sem við gengum til kosninga. Þá sagði Sjálfstæðisflokkurinn skýrt að hann væri á móti aðild að Evrópusambandinu. Það sagði Framsóknarflokkurinn líka. Það sagði Flokkur fólksins líka. Samfylkingin setti þetta mál til hliðar. Eini flokkurinn sem var með þetta á oddinum var Viðreisn. Ég verð að óska félögum í Viðreisn innilega til hamingju með þennan mikla árangur sem þau hafa náð í að koma þessu máli í gegnum þessa ríkisstjórn og hafa greinilega náð að hræra hér í þingmönnum Flokks fólksins sem eru ekki alveg vissir um í hvorn fótinn þeir ætla að stíga.
Ég spyr aftur hv. þingmann, hún þarf ekki að segja mér hvernig hún hyggst greiða atkvæði, hún veit það greinilega ekki. (Forseti hringir.) En hvernig hyggst hennar flokkur, sem hefur það skýrt á stefnuskrá sinni að vera á móti aðild að Evrópusambandinu, vinna í aðdraganda þessara kosninga? (Forseti hringir.) Ætla ráðherra flokksins, formaður flokksins og þingmenn ekki að upplýsa um það hvort þeim finnist eðlilegt að fara í aðildarviðræður þegar flokkurinn er yfirlýst á móti því að ganga inn í Evrópusambandið?