þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það eru ýmsir sem geta breytt um skoðun eða hvernig sem það er. Það er bara eins og það er. Sjálfstæðisflokkurinn var að leggja fram breytingartillögu við þessa þingsályktunartillögu þar sem hann leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með breytingartillögunni sem þeir eru með. Er Sjálfstæðisflokkurinn fylgjandi aðild að Evrópusambandinu? Vill Sjálfstæðisflokkurinn ganga í Evrópusambandið? Er það málið? Ég meina, ég bara spyr vegna þess að þið segið að með smá breytingum séuð þið til í að samþykkja þessa þingsályktunartillögu. (DME: Við erum ekki Framsóknarflokkurinn.) Hvað sagðirðu? (DME: Við erum ekki Framsóknarflokkurinn.) Ég skil ekki hvað þú ert að meina með því. (DME: Það er hvergi lagt til í okkar tillögu að við samþykkjum þetta.)
„Að framangreindu virtu leggur 3. minni hluti til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með breytingartillögu sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.“
Það er ég bara með hérna fyrir framan mig þannig að ég sé ekki betur en að Sjálfstæðisflokkurinn sé að leggja til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með örlitlum breytingum. Er Sjálfstæðisflokkurinn fylgjandi aðild að Evrópusambandinu? (BHar: Mjög góð spurning.) Nákvæmlega. (BHar: Ég hef ekki svar við þeirri spurningu. )
(Forseti (IngÞ): Forseti minnir hv. þingmenn á að eiga ekki í samtölum við þingmann í pontu.)