157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:21]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég held að U-beygja Flokks fólksins í þessu máli sé öllum ljós, hvort sem þeir tilheyra þingheimi eða eru að hlusta á þessa útsendingu. En hv. þingmaður lýsir því yfir að Flokkur fólksins sé enn þá á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Er það svo? Getur hv. þingmaður fullyrt það fyrir hönd allra hv. þingmanna Flokks fólksins? Ég hef ekki orðið vör við þessa miklu andstöðu hér í umræðunni og reyndar ekki heldur við vinnslu málsins. Fulltrúi Flokks fólksins í utanríkismálanefnd hefur reyndar bara mjög lítið sést í þessari umræðu og þess ber ekki merki í nefndaráliti sem Flokkur fólksins skrifar undir. Formaður utanríkismálanefndar lýsir því að það eigi ekki að binda tillöguna skilyrði, sem sagt ekki að fara í skilyrtar samningaviðræður við Evrópusambandið, t.d. varðandi varanleg yfirráð yfir auðlindum Íslands. (Forseti hringir.) Því langar mig til að spyrja hv. þingmann: Er Flokkur fólksins sammála þessu?