þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég ætla bara að hafna því að Flokkur fólksins sé búinn að taka einhverja U-beygju. Við höfum alltaf verið fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslum og þó að við höfum ekki verið að taka einhverja slagi út af Evrópusambandinu hérna á Alþingi á undanförnum árum þá hefur Flokkur fólksins talað fyrir því að það verði atkvæðagreiðsla um það. Svo langar mig bara að biðja hv. þingmann að vera ekki að dylgja um það að fulltrúi Flokks fólksins í utanríkismálanefnd hafi ekki verið mikið viðstaddur þessar umræður. Hann var frá að einhverju leyti vegna ferðalaga á vegum þingsins og vegna veikinda. Við skulum ekki vera að láta að því liggja hérna að Flokkur fólksins hafi verið að forðast þessa umræðu. Ég kann því illa að það sé verið að dylgja með þessum hætti.