157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:23]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta voru engar dylgjur. Þetta voru bara spurningar sem hv. þingmaður forðaðist, eins og reyndar fjölmargar aðrar spurningar sem henni hafa borist hér í kvöld. Ég spurði að því hvort hún gæti fullyrt um það að allir þingmenn Flokks fólksins væru andvígir aðild að Evrópusambandinu. Ég vísaði til umræðna hér í þingsal og vísaði til vinnu nefndarinnar þar sem fyrir liggur m.a. nefndarálit meiri hlutans sem Flokkur fólksins skrifar undir og sem ber engan keim af því að Flokkur fólksins sé andvígur aðild að Evrópusambandinu. Vill þá ekki hv. þingmaður staðfesta það að allur þingflokkur Flokks fólksins sé einhuga í þeirri afstöðu að vera andvígur aðild að Evrópusambandinu?