157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:24]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Já, það mætti spyrja á móti: Getur hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir fullyrt að allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu á móti Evrópusambandinu? (DME: Já. )Er það? Ertu viss? (DME: Já. )Já, ókei. Það er þannig að eftir því sem ég best veit eru þingmenn Flokks fólksins á móti Evrópusambandinu. Þetta er ekki það sem við erum mest að ræða um vegna þess að við höfum bara ekki haft neinn svakalegan áhuga á þessu málefni þannig séð þannig að við erum ekkert alltaf að ræða þetta. En það er eftir því sem ég best veit. Það geta verið á því einhverjar undantekningar en ég geri ekki ráð fyrir því. Það er yfirlýst stefna Flokks fólksins að við séum ekki fylgjandi aðild að Evrópusambandinu. Ég ætla ekki að fara að tala hérna alveg fyrir hverja einustu persónu en ég veit ekki til annars.