157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:25]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér þjóðaratkvæðagreiðslu um að ganga til viðræðna við Evrópusambandið. Ég verð, virðulegur forseti, að biðjast afsökunar á því í upphafi að kannski verður þetta bara mjög leiðinleg ræða. Ég hef tekið það að mér hér að vera svolítill formalisti og fer oft yfir verklag og gagnrýni það. Ég vona svo sannarlega að ég nái að fara í efnisatriði máls sem er auðvitað stóra málið og eitthvað sem ég hlakka til að ræða. Það er bara sú spurning hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið innan eða utan Evrópusambandsins. Ég ætla að segja það skýrt hér í upphafi að ég hef þá trú að hagsmunum Íslands sé ekki betur borgið innan Evrópusambandsins. Ég hef þá trú að sú samningsstaða sem við höfum í dag í gegnum EES-samninginn sé okkur hagstæðari heldur en að ganga inn í sambandið.

Ég er stoltur Íslendingur og stolt yfir sjálfstæði okkar en ég er líka mjög hlynnt alþjóðasamstarfi. Ég tel að EES-samningurinn sé einn af okkar allra bestu samningum og hann hafi skipt okkur verulega miklu máli. Ég hef heldur ekkert á móti Evrópusambandinu. Mér finnst Evrópusambandið fínt. Ég vil vinna með Evrópusambandinu, ég vil bara ekki ganga í Evrópusambandið.

Förum aðeins í það mál sem hér er undir. Forsaga málsins er sú að einn flokkur á þingi hefur sett það á oddinn að ganga í Evrópusambandið. Það er flokkur sem var stofnaður sérstaklega utan um það verkefni að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Þessum flokki tókst í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að fá Samfylkinguna og Flokk fólksins með sér í þá vegferð og mér er kunnugt um það að Samfylkingin er með það á sinni stefnuskrá og hefur verið með það lengi. En það var alveg skýrt þegar nýr formaður tók við Samfylkingunni að Evrópusambandsaðild væri ekki sett á oddinn. Það átti að einblína á önnur mikilvægari verkefni sem sneru að því að koma hlutum í lag hér heima eins og ég hygg að hæstv. núverandi forsætisráðherra hafi orðað það. Við getum svo sem farið yfir það að í þessari ágætu stefnuyfirlýsingu, með leyfi forseta, stendur í fyrstu setningum hennar:

„Ný ríkisstjórn gengur samstíga til verka. Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.“

Það er svo í síðasta punktinum í þessari stefnuyfirlýsingu þar sem sagt er að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Viðreisn kom þessu fyrir í stjórnarsáttmálanum en þó þannig að þetta ætti að gerast eigi síðar en 2027. Nú erum við í maí 2026 að ræða þessa þingsályktunartillögu sem reyndar, virðulegur forseti, var ekki á þingmálaskrá. Það segir í 47. gr. þingskapalaga að það skuli leggja fram mál á þingmálaskrá. Reyndar var það svo að utanríkisráðherra gaf í og úr með það hvort þetta mál kæmi inn á þetta þing eða ekki. Þarna er nú eitt í formsatriðunum sem vissulega hefur verið litið fram hjá, fyrir utan auðvitað að það virðist vera orðin lenska hjá þessari ríkisstjórn að virða ekki eigin reglur um samráðsgáttina því að þetta mál rataði ekki heldur þangað.

Þá skyldi maður nú kannski ætla, virðulegur forseti, að flokkurinn sem stofnaður var sérstaklega utan um það að ganga í Evrópusambandið og hefur haft það sem sitt helsta mál á dagskrá myndi kannski koma hér með ítarlegt og greinargott plagg fyrir þingið þegar hann fengi loksins stuðning frá þingmeirihluta til að koma því í gegn. En svo var nú aldeilis ekki því að greinargerðin með þessari þingsályktunartillögu sem við ræðum hér er býsna rýr. Það er í rauninni ekkert sem er hönd á festandi annað en það sem gert var á sínum tíma. Spurningin er óskýr. Ekki eru færð rök fyrir tímasetningunni, ekkert er farið yfir kostnaðarmat. Samningsmarkmiðin eru engin nema vísað er í það sem hafði verið horft til hjá fyrri vinstri stjórninni.

Virðulegur forseti. Það leiðir mig, sem er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að því að við í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fengum þetta mál eðlilega til umsagnar þar sem undir þá nefnd falla jú kosningalögin og umfjöllun um slík mál. Þá verð ég að fá að grípa hér niður í umsögn okkar frá minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem jafnframt fylgir með í nefndaráliti frá meiri hluta hv. utanríkismálanefndar. Ég ætla að byrja á þessu með dagsetninguna. Það kemur skýrt fram í kosningalögum að hér er verið að nýta minnsta mögulega tímafrest sem lögin kveða á um með þessari fyrirætlun um að gengið verði til atkvæðagreiðslu 29. ágúst, algerlega minnsta, því það segir í lögunum að það megi vera 3–12 mánuðir. Þá veltir maður fyrir sér hver rökin eru fyrir því. Þau hafa ekki enn þá komið fram. En í umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar má sjá að það kom skýrt fram, bæði hjá landskjörstjórn og í raun hjá Feneyjanefndinni, að það þyrfti að vanda sérstaklega til verka. Landskjörstjórn benti sérstaklega á þau vandkvæði sem væru fólgin í því að fara í atkvæðagreiðslu á þessum tíma. Við skulum líka átta okkur á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla þarf að hefjast fyrr og þetta er yfir sumartímann þannig að þetta setur auðvitað gríðarlega pressu á landskjörstjórn að framkvæma bæði atkvæðagreiðsluna og halda utan um hana, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og annað, en ekki síður, og það er kannski það sem Feneyjanefndin benti sérstaklega á, mikilvægi þess að landskjörstjórn hefur hér fræðsluskyldu að gegna. Hún á að veita kjósendum góðar upplýsingar um það sem verið er að fara að kjósa um. Þessi tímafrestur sem hér er lagður til er — ég ætla að leyfa mér að segja það, það er mitt álit — dónalega stuttur. Hann er dónalega stuttur til að ætla þessu fólki það að koma hér fram með greinargóðar og hlutlausar upplýsingar um það sem á að fara að kjósa um og gefa landsmönnum tækifæri til þess að kynna sér þær upplýsingar. Þess vegna lögðum við í nefndinni til í umsögn okkar, og formaður Sjálfstæðisflokksins hafði reyndar gert það líka, að þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði frestað eða seinkað og var 17. október nefndur í því samhengi.

Svo var það orðalag spurningarinnar en þeir umsagnaraðilar sem við leituðum til gerðu verulegar athugasemdir við það hvernig spurningin var orðuð. Hún þarf að vera skýr. Ég veit að sumum nefndarmönnum og þingmönnum fannst þetta minni háttar og ég átta mig alveg á því og ég skil alveg að almenningi kann að finnast þetta einhvern veginn vera minni háttar mál, því um hvað snýst þetta? Þetta snýst um það að gefa ríkisstjórninni eða hæstv. utanríkisráðherra umboð til að fara til Brussel og ræða við Brussel um mögulega aðild að Evrópusambandinu fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Það er í rauninni það sem er verið að biðja um. Það er verið að flækja spurninguna með því orðalagi að halda áfram með viðræður þegar sumir eru alveg á því að þeim hafi algerlega verið slitið — og vissulega eru til sannanir fyrir því, aðrir vilja halda áfram og allt þetta. Það var bent á að það að setja það inn í spurninguna væri að flækja málið. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki enn þá að einhverjum hafi dottið það í hug sem raunverulega vill bara fá þetta umboð að vilja flækja umræðuna með þessum hætti. Ég hefði haldið að það væri mikilvægt fyrir hæstv. ráðherra að fá skýrt umboð til að fara í þessa vegferð sem hún óskar svo mikið eftir. Núna er tillagan sem sagt sú frá meiri hlutanum að segja „hefja að nýju“ viðræður við Evrópusambandið en í tillögu okkar í minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var orðalagið bara „að ganga til viðræðna“. Ástæðan fyrir þeirri tillögu er sú að okkur finnst það bara enn þá skýrara. Ég heyrði meira að segja hv. þm. Pawel Bartoszek hér í framsögu eða í andsvörum sínum leggja þetta svolítið að jöfnu, að segja hefja að nýju eða ganga til viðræðna. Það er raunverulega það sem á að gera, það er verið að biðja um umboð til að ganga til viðræðna við Evrópusambandið. En gott og vel. Meiri hluti utanríkismálanefndar féllst ekki á þessa tillögu.

Þá nefnum við líka kostnaðinn í umsögn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Virðulegur forseti. Þetta er kannski svolítið formlega hliðin og kannski er hægt að segja að þetta sé ekki það stærsta í málinu þegar við erum að ræða um svona risastórt mál eins og aðild að Evrópusambandinu er. Þetta er gríðarlega stórt og mikilvægt mál fyrir íslensku þjóðina. Þá getur vel verið að fólki finnist það algjör tittlingaskítur hvort orðalagið sé að halda áfram með, hefja á ný eða ganga til viðræðna eða eitthvað svoleiðis. Það getur vel verið að fólki finnist líka alger tittlingaskítur hvort það sé tekið fram að atkvæðagreiðslan sjálf muni kosta einhverjar 700 milljónir. Við erum að reyna að krefja ríkisstjórnina um einhver svör við því hvað aðildarviðræðurnar sjálfar, eða aðlögunarviðræðurnar eins og sumir kalla það, myndu kosta okkur en engar upplýsingar hafa verið gefnar um það. En allt skiptir þetta þó máli þegar kemur að hlutverki okkar hér sem þingmanna að huga að því að vandað sé til verka.

Virðulegur forseti. Þá er það kannski það sem skiptir öllu meira máli, þ.e. hvert umboðið er. Þegar við göngum til þessarar atkvæðagreiðslu verða þeir sem hyggjast segja já í þessari atkvæðagreiðslu að vita hvaða umboð þeir eru að veita hæstv. utanríkisráðherra. Hvert er veganestið? Ég fór yfir það áðan, virðulegur forseti, að þingsályktunartillagan sjálf er ansi rýr. Hér segir lítið sem ekkert. Þegar þetta plagg var kynnt fyrir þjóðinni á einum af mörgum blaðamannafundum þessarar ríkisstjórnar, þar sem okkur var tilkynnt að nú væri verið að fara að leggja þetta til og 29. ágúst var nefndur í því samhengi, þá minnist ég þess að einhverjir blaðamenn beindu spurningu til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, formanns Flokks fólksins, Ingu Sæland, um hvort sömu samningsmarkmið myndu gilda og hjá síðustu vinstri stjórn. Mér þykir mjög vænt um hæstv. ráðherra Ingu Sæland og gaman hvernig hún er í tilsvörum, en hún sagði: Nei, nei, nei. Það átti ekki að gilda.

Ég hlustaði á framsögu formanns utanríkismálanefndar, hv. þm. Pawels Bartoszeks. Ég varð engu nær um hver samningsmarkmiðin eru. Hvað er þingið og utanríkismálanefnd að senda til ráðherra þegar hún fer svo út til Brussel að ræða við Evrópusambandið? Það er búið að tala um rauðar línur og auðlindirnar okkar og eitthvað og ég hélt þegar ég byrjaði að lesa þessar tæplega 50 blaðsíður hérna að það væri alla vega búið að taka það alveg skýrt fram hver samningsmarkmiðin væru. En, virðulegur forseti, ég bið hv. þm. Pawel Bartoszek að leiðrétta mig ef svo er en ég bara finn það ekkert í þessu skjali. Það er ekki skýrt fyrir mér hver þessi samningsmarkmið eru.

Feneyjanefndin benti á það, og ég sé að flestir virðast hafa tekið undir það, að Evrópusambandið hefur breyst alveg svakalega mikið frá því að síðasta vinstri stjórn hóf aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar af leiðandi hefur bæði margt breyst á Íslandi og margt breyst hjá Evrópusambandinu sem gerir það að verkum að það er ekkert hægt að halda bara áfram og segja: Heyrðu, hér er búið að loka einum kafla og við göngum að þessu með þessum hætti. Ég veit ekki betur en að flestir taki nú undir það sjónarmið að það þurfi sem sagt að fara yfir þessi mál að nýju. Þá þykir mér, virðulegur forseti, alveg ofboðslega mikilvægt að þau markmið séu skýr. En við lestur þessa álits er það ekki skýrt.

Þá spyr maður sig: Nú á landskjörstjórn að undirbúa þessa atkvæðagreiðslu og undirbúa fræðsluefni og upplýsingagjöf, óháða upplýsingagjöf, til kjósenda um það sem verið er að kjósa um. Og hvað á landskjörstjórn að segja? Hvaða umboði er þessi ríkisstjórn að sækjast eftir hjá þjóðinni? Ef kjósendur segja já þann 29. ágúst, hvað þýðir það?

Virðulegur forseti. Mér er það ekki ljóst og ef ég sem hef verið þingmaður frá árinu 2016 get ekki lesið það í gegnum þetta, hvernig getum við þá ætlast til þess að kjósendur geri það? Ég sé í tillögu frá minni hlutanum að lagt er til að ríkisstjórnin þurfi að birta slík samningsmarkmið með einhverjum fyrirvara. Ég held að það hljóti að vera mjög mikilvægt en mér finnst engu að síður mjög ámælisvert ef hér er verið að leggja til að við afgreiðum þessa tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu án þess að það liggi fyrir og það séu algerlega skýr skilaboð frá þinginu um hvar mörkin eru dregin. Ég veit að við höfum átt alls konar umræðu um það hér í dag og í fyrri umræðu en það er ekki alveg hönd á því festandi. Það stendur ekki skýrt á blaði hvað það er, hvar þessi svokölluðu rauðu strik eru eins og farið hefur verið yfir eða skýr samningsmarkmið hvað það varðar.

Virðulegur forseti. Ég vona að þessi síðari umræða um þessa þingsályktunartillögu verði upplýsandi. Ég hefði viljað sjá það skýrt í nefndaráliti meiri hlutans. Ég tel að það hefði verið góður bragur á því að nefndarálit frá utanríkismálanefnd væri með þessi samningsmarkmið alveg skýr, en svo er ekki, í það minnsta að það væri skýrt í nefndaráliti meiri hlutans hvað þau væru að leggja til að íslenska þjóðin gæfi hæstv. utanríkisráðherra umboð til að gera.

Virðulegur forseti. Tíminn er að verða búinn hjá mér þannig að ég næ því miður ekki meiru. Þetta er nú kannski hálfleiðinleg ræða því að ég næ ekki að fara í efnisatriði málsins og mun kannski eiga það inni fyrir síðari ræðu. En ég ítreka það sem ég sagði áðan: Ég hef sannfæringu fyrir því að aðild að Evrópusambandinu þjóni ekki hagsmunum Íslands. Ég ber virðingu fyrir þeim sem hafa aðra skoðun og önnur sjónarmið. Ég hef í töluverðan tíma tekið samtal um þetta við kjósendur vegna þess að síðan ég tók sæti á þingi hafa átt sér stað nokkrar kosningar og þetta mál hefur stundum komið upp. Sjaldnast er þetta mikið áhugaefni en oft hef ég þó verið spurð að þessu. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til þess efnis er og hefur verið alveg skýr. Þess vegna finnst mér þessi vegferð skringileg í ljósi þess að ekki er meiri hluti á þingi fyrir að ganga í Evrópusambandið. En það er búið að ná því fram í stjórnarsáttmála að það er meiri hluti fyrir því að samþykkja tillögu um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég get svo sem fagnað því að það er skömminni skárra heldur en ef það hefði verið farið beint til Brussel að ræða málin. En það var heldur enginn meiri hluti fyrir því. Það hefði ekkert gerst. Það hefði þjóðin þurft að ákveða í kosningum og það gerði hún ekki.

Virðulegur forseti. Ég held að það sé nauðsynlegt að komast til botns í því hver þessi samningsmarkmið eru. Hvert er raunverulegt umboð utanríkisráðherra þegar hún fer til Brussel ef meiri hluti þjóðarinnar myndi nú segja já þann 29. ágúst næstkomandi?