þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ræðu. Ég ætlaði nú að koma hér í andsvar við hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, sem er framsögumaður 3. minni hluta, en það voru svo margir úr öðrum flokkum stjórnarandstöðunnar áhugasamir um að ræða við hana um það hve ríkisstjórnin væri slæm að ég komst ekki að. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir er því fyrsti fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem ég fæ að eiga orðastað við.
Mig langar að spyrja, vegna þess að hér var nokkuð hart sótt að fulltrúa Flokks fólksins, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, út af því sem túlkað er að séu sinnaskipti hjá henni og hennar flokki; að hún hafi verið á móti Evrópusambandinu en greiði núna atkvæði með þingsályktunartillögu um atkvæðagreiðslu. Það er auðvitað fyrsta skrefið í átt að aðild, það voru rökin. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði þetta og ég skildi gagnrýnina frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur á sama hátt. Sjálfstæðisflokkurinn, 3. minni hluti, er að leggja fram að þessi tillaga verði samþykkt, að tillaga um að þjóðin fái að kjósa um það hvort ganga eigi til aðildarviðræðna, viðræðna um að ganga í Evrópusambandið, verði samþykkt. Sjálfstæðisflokkurinn er að leggja til að það verði samþykkt. Sjálfstæðisflokkurinn er að leggja til að fyrsta skrefið verði tekið í átt að því að ganga í Evrópusambandið á sama hátt og Flokkur fólksins er að leggja til að verði gert. Jú, jú, það eru breytingartillögur, að dagsetningin sé færð, að spurningin sé aðeins öðruvísi, að samningsmarkmiðin séu skýr. Ef ég og hv. þingmaður værum að semja í ríkisstjórnarsamstarfi værum við ekki lengi að ná saman ef þetta er bara spurning um dagsetningu og orðalag spurningar. Hvernig má það þá vera að hér sé hart sótt að einum flokki fyrir að vilja ganga í þá átt að stíga skref inn í Evrópusambandið með því að samþykkja að það sé kosið um aðildarviðræður þegar sami flokkur leggur fram breytingartillögu og tillögu um að þingsályktunartillagan verði samþykkt. Er Sjálfstæðisflokkurinn þá ekki að leggja til að fyrsta skref í átt að Evrópusambandinu verði samþykkt?