þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég er líka alveg til í að fara í umræðu um gildi þessarar ríkisstjórnar út af því að hv. þingmaður byrjaði nú á því að kvarta yfir því að það hefði verið rætt hér í dag. Ég veit ekki hvert hv. þingmaður er að fara með þessari spurningu. Þetta er alger útúrsnúningur. Sjálfstæðisflokkurinn er á móti aðild að Evrópusambandinu. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki hlynntur því að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Það sem ég gerði sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og nefndarmaður þar inni þegar við fengum þetta verkefni, ég sagði: Ókei, ég er ekkert sammála þessari vegferð. En verkefni okkar núna er að reyna að vanda til verka og gera þetta eins vel og hægt er. Þess vegna fórum við m.a. fram á að fá umsögn frá Feneyjanefndinni og fá umsögn og samtal við landskjörstjórn. Hæstv. ráðherra hafði ekki einu sinni gætt að því, sem þó segir skýrt í kosningalögunum, að ræða eigi við landskjörstjórn um þessi mál og fá hennar álit. Þannig að nefndin gerði það. Þar komu skýrt fram vandkvæði, efasemdir um þessa dagsetningu. Ég spyr því hv. þingmann: Ef hv. þingmanni og hans flokki er svo umhugað um að koma þessum aðildarviðræðum á, af hverju hlusta þau þá ekki á þær raddir? Það er verið að nýta minnsta mögulega frest sem gefinn er í kosningalögum til þess að fara í þessa atkvæðagreiðslu þrátt fyrir þær ábendingar sem koma skýrt frá Feneyjanefndinni og landskjörstjórn um mikilvægi upplýsinga og mikilvægi fræðslu. Af hverju hlustuðu hv. þingmenn meiri hlutans ekki á þær ábendingar og þau ráð?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur það ekki á stefnuskrá sinni að fara í þessar aðildarviðræður en við erum að leggja til að þetta algjörlega handónýta mál, sem kom hér frá ríkisstjórninni — við erum þó að reyna að bæta það í samræmi við ráðgjöf færustu sérfræðinga sem eru Feneyjanefndin og landskjörstjórn. Því miður virðist meiri hlutinn hlusta lítið; aðeins á þetta með spurninguna, ég hrósa honum þó fyrir það, það hefði þó mátt ganga betur og menn vera skýrari hvað það varðar, en ekkert á þetta með dagsetninguna.