157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, við hlustuðum á spurningar hvað þetta varðar. Það var þannig að minni hlutinn kallaði eftir áliti eins sérfræðings sem kom á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og eftir því sem ég best veit hafði sá sérfræðingur lagt til það orðalag sem meiri hlutinn er nú að leggja til. En ég endurtek: Mér finnst þetta dálítið skrýtið. Ef það á að gagnrýna Flokk fólksins fyrir að styðja þjóðaratkvæðagreiðslu hlýtur sama gagnrýnin að enda á þeim sem styðja þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er Sjálfstæðisflokkurinn. Ég kaupi ekki alveg þau rök að þetta sé einhvers konar skaðaminnkun. Það eru aðrir flokkar sem leggja til breytingar án þess að leggja til að þetta sé samþykkt. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að þetta sé samþykkt sem ég auðvitað fagna.

Þá langar mig að spyrja: Ef Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að þessi tillaga verði samþykkt með þessum breytingum — segjum að það verði gert, að það verði fallist á breytingartillögu Sjálfstæðisflokksins og hún svo samþykkt — mun Sjálfstæðisflokkurinn þá fylgja og una niðurstöðunni? Segjum að Sjálfstæðisflokkurinn fái svo hreinan meiri hluta í næstu kosningum eftir þetta. Það kemur já úr þjóðaratkvæðagreiðslunni og svo vinnur Sjálfstæðisflokkurinn stórsigur. Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn, ætla hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Guðrún Hafsteinsdóttir, þá að fara til Brussel og ná sem bestum samningi fyrir íslensku þjóðina á grundvelli jákvæðrar niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslu sem Sjálfstæðisflokkurinn studdi?