þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég ætla bara að vera alveg skýr í því að ég sé ekki fyrir mér að samþykkja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, en ég sé heldur ekki fyrir mér að standa í vegi fyrir henni. Við í nefndinni, alla vega í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og ég held að það sama hafi verið uppi á teningnum í utanríkismálanefnd, vorum að reyna að betrumbæta illa unna tillögu frá hæstv. utanríkisráðherra. Við vorum að horfa til ábyrgðar okkar í því hvernig þessi þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið betur fram og verið skýrari svo að umboðið til ríkisstjórnarinnar væri skýrt. Þess vegna spyr ég enn og get kannski ekki fengið svar, ég spurði hv. þingmann áðan: Af hverju var ekki horft til þessa með dagsetninguna? Af hverju er þeim sem er svona umhugað um að ganga inn í Evrópusambandið — af hverju vilja þeir ekki hlusta á helstu sérfræðinga? Af hverju vilja þeir ekki sjá til þess að upplýsingagjöfin hér sé nægjanlega góð? Ég skil það ekki. Mér er algerlega fyrirmunað að skilja það.
Virðulegur forseti. Til að vera alveg skýr þá er ég ekki hlynnt þessari vegferð en ég er þó að rækja skyldu mína sem þingmaður og reyna að sjá til þess að hér séu mál betur unnin frekar en illa unnin. Því miður hefur það allt of oft einkennt þessa ríkisstjórn og þennan stjórnarmeirihluta að hér séu mál stimpluð, unnin hratt og illa.