157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:54]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu og hlakka til að heyra seinni hluta ræðunnar. Hv. þingmaður talaði í sinni ræðu um samningsmarkmiðin og mig langar aðeins að víkja að þeim í þessu andsvari mínu. Sá sem hér stendur og talar hefur í allnokkur skipti komið að samningum og samningagerð og sem dæmi þegar maður var á sveitarstjórnarstiginu var maður að semja og það þarf að vera alveg skýrt þegar þú ferð í samningaviðræður hverju þú ætlar að ná fram í viðræðum. Það er grunnforsenda fyrir því að þú getir farið af stað að mínu viti að samningsmarkmiðin séu skýr. Hverju ætlum við að ná fram í þessum samningum? Ég hef saknað þess að það sé ekki nægilega skýrt eða bara tekið fram hver þessi samningsmarkmið nákvæmlega eru. Mér finnst rétt að bæði þingið og þjóðin fái að vita að hverju skal stefnt — sem leiðir mig til þess að að rifja upp ummæli hæstv. forsætisráðherra sem tilkynnti þinginu og þjóðinni þá líka að hæstv. forsætisráðherra myndi ekki koma heim með nema góðan samning. Það er bara einhvern veginn mjög undarlegt, virðulegur forseti, að fara út til Brussel og ætla að ná samningum fyrir hönd Íslands án samningsmarkmiða og að, hvort sem það er forsætisráðherra eða utanríkisráðherra, sem er líklegra í þessu tilfelli, ætla að fá að meta það fyrir hönd íslensku þjóðarinnar og Alþingis hvort samningurinn (Forseti hringir.) sé nægjanlegur án þess að hafa nokkurn tímann skýrt frá markmiðum samningsins. Finnst hv. þingmanni þetta ekki jafn undarlegt og þeim sem hér stendur?