157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:56]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og segi: Ég er algerlega sammála því og hefði getað eytt meiri hluta ræðunnar í það. Ég var svolítið í forminu fyrst. En þetta er auðvitað stóra málið fyrir þessa atkvæðagreiðslu, eins og ég sagði svo skýrt í ræðunni hérna áðan: Hvaða umboð er íslenska þjóðin að veita? Hvaða umboð er ríkisstjórnin að biðja íslensku þjóðina um? Þau eru að biðja um að fá að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ég veit alveg að það á að kjósa aftur. Ég veit að þetta er ekki um aðild að Evrópusambandinu, þetta er um að ganga til aðildarviðræðna. Og hvað, hver eru samningsmarkmiðin? Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að hér hefur hæstv. forsætisráðherra farið mikinn í því að lýsa með einhverjum orðum að selja Ísland dýrt og hún muni ekki leggja þetta fyrir nema koma hingað heim með góðan samning og eitthvað svona. Og hvað er það? Er umboðið sem þjóðin er að veita bara út af því að við treystum einhvern veginn þessum orðum forsætisráðherra eða því sem hæstv. utanríkisráðherra segir? Er það skýrt? Er það í samræmi við þær leikreglur sem settar eru í lýðræðisríkjum um þjóðaratkvæðagreiðslu, að spurningin sé skýr, að það sé algjörlega skýrt hvað átt er við? Mér þykir það ekki. Þess vegna hryggði það mig mjög að sjá það ekki í greinargerð upphaflegu þingsályktunartillögunnar þar sem mér hefði fundist að það ætti að vera skýrara. Ókei, þá var vísað í það að á sínum tíma þegar síðasta vinstri stjórn fór í þessa vegferð hefði nefndin komið með þessi samningsmarkmið skýr. Ég get ekki lesið það úr þessum tæplega 50 blaðsíðum. Mér finnst það ekki skýrt. Ég hef heldur ekki heyrt þingmenn stjórnarmeirihlutans fara skýrt yfir það hver samningsmarkmiðin eru. Mér finnst við ekki geta lokið þessari umræðu fyrr en það er orðið skýrt. Hvernig á landskjörstjórn að upplýsa kjósendur um út á hvað þetta mál gengur? Hvað er verið að biðja um? (Forseti hringir.) Það er ekki skýrt.