157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir svarið. Ég er á sama stað og hv. þingmaður. Ég átta mig ekki alveg á því hvert umboðið er. Það sem mér finnst enn þá skrýtnara í þessu er að við erum á Alþingi Íslendinga að ræða það hvert samningsmarkmiðið er og hvað við ætlum að fá út úr samningum. Við hér, hvort sem það eru fulltrúar í utanríkismálanefnd eða bara þingsins, stöndum hér og tölum um að við vitum ekki nákvæmlega um hvað á að semja, hvert markmiðið er eða yfir höfuð hvaða umboð sá aðili fær, utanríkisráðherra eða forsætisráðherra, sem fer út til Brussel að semja. Á sama tíma er verið að tala um að það sé mikilvægt að íslenska þjóðin sé upplýst um hvað er í boði. Og ef við hér á Alþingi og þeir sem leggja frumvarpið fram getum ekki komið með betri og skýrari hætti fram með sín eigin markmið, (Forseti hringir.) hvernig á íslensk þjóð að geta tekið og markað sér skoðun á málinu ef skilaboðin eru ekki skýrari?