þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Þarna liggur einmitt þetta risastóra vandamál sem við stöndum frammi fyrir hér í þinginu við umræðu og afgreiðslu þessarar þingsályktunar. Þetta þarf að vera skýrt. Ég get alveg skilið rök hjá fólki sem segir: Ókei, spyrjum þjóðina. En það verður að vera skýrt hvert umboðið er. Hvað er verið að spyrja þjóðina um? Ég hef enga trú á því að þjóðin vilji gefa þessari ríkisstjórn einhvern óútfylltan tékka út til Brussel. Ég hefði haldið að fulltrúar þessarar ríkisstjórnar hefðu viljað hafa það alveg skýrt, ef til þess kemur að þjóðin segi já, hvert þeirra umboð er. Því miður hefur enn ekki tekist að skýra það og þá kemur aftur að þessari umræðu varðandi tímafrestinn sem er mjög skammur. Hvenær á það að verða kjósendum skýrt hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir í umræðum sínum við ESB úti í Brussel?