þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir prýðilega ræðu sem hún lagði nú reyndar sjálf dálítið upp úr að væri kannski ekki nógu skemmtileg. En það er efnisinnihaldið en ekki skemmtanagildið sem skiptir máli og hvað það varðar var ræðan prýðisgóð. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það ferli sem búið er að eiga sér stað, bæði í umræðu hér í sal og vinnu í nefndum, bæði stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og utanríkismálanefnd. Þar hófst þetta þannig, svo við höldum áfram þessari upprifjun, að minni hlutinn hér inni gerði talsvert miklar athugasemdir við orðalag spurningarinnar. Ég ætla ekki að segja að það hafi verið hlegið að þeim athugasemdum en það munaði litlu; hér værum við að drepa málum á dreif og tala um eitthvað sem ekki skipti máli. Við héldum gagnrýninni samt áfram því að spurningin var augljóslega byggð á röngum forsendum. Við vorum ekki fjær lagi í þeirri gagnrýni en svo að þegar við fórum að fá umsagnir bæði landskjörstjórnar og Feneyjanefndarinnar og svo, sem hv. þm. Pawel Bartoszek nefndi hér áðan, að kallaður hefði verið til sérfræðingur af hálfu minni hlutans í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd — þá get ég upplýst hér að það var ég sem óskaði eftir því í upphafi að Arnar Þór Stefánsson lögmaður kæmi fyrir nefndina. Og jú, það er rétt sem kom fram, að hann lagði til þessa spurningu. Það var ein af mörgum hugmyndum sem voru í pottinum. En aðalatriðið er þetta: strax í upphafi var minni hlutinn gagnrýndur fyrir að vera í einhverjum orðhengilshætti. En niðurstaðan úr vinnunni er samt sú að allir sérfræðingar, hvort sem það var landskjörstjórn, Feneyjanefndin eða áðurnefndur Arnar Þór Stefánsson, voru sammála minni hlutanum um að þessi spurning sem átti að leggja fyrir þjóðina gengi ekki upp. Það var niðurstaðan.
Ég velti því hins vegar fyrir mér í framhaldi af þessu, frú forseti, og í ljósi þess að hér var rætt um tímasetningar líka spyr ég hv. þingmann: (Forseti hringir.) Hvernig metur hv. þingmaður að það muni ganga að miðla upplýsingum (Forseti hringir.) sem landskjörstjórn ber skylda til að gera til að mynda í júlí og ágúst, svona miðað við hefðbundinn sumarfrístíma hér á landi?