þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það eru örugglega með lélegustu ræðumönnum sem geta byrjað ræður sínar á því að afsaka hvað þær eru leiðinlegar, ég verð bara að viðurkenna það. Ástæðan er sú að ég held að aðalatriði málsins, efnisatriðin, það að ræða um hvort Íslandi sé betur borgið innan Evrópusambandsins eða utan, sé svo skemmtileg umræða og mig langaði svo mikið að fara í það. Engu að síður þurfti ég stöðu minnar vegna og þeirrar vinnu sem hv. þingmaður vísar í í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að fara yfir þessi formsatriði sem skipta líka mjög miklu máli. Þetta er í rauninni svolítið formsatriðamál. Hvernig eigum við að haga þessari þjóðaratkvæðagreiðslu? Þá er einmitt þetta með spurninguna alveg lykilatriði. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það voru margir sem pirruðu sig á því að við værum að velta því fyrir okkur eins og það skipti svo miklu máli. En niðurstaðan er auðvitað sú að það skiptir rosalega miklu máli. Því ef spurningin er ekki skýr þá er svarið ekki skýrt og þá er umboðið ekki skýrt og þess vegna er svo mikilvægt að þetta sé allt saman skýrt.
Virðulegur forseti. Ég ætla að minna á það, ég held að það hafi verið stuttu eftir að umsögn landskjörstjórnar birtist, þá fullyrti hæstv. utanríkisráðherra að þetta væri engu að síður alveg skýrt. Það væri alveg skýrt hvað átt væri við en sem betur fer tók meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og utanríkismálanefndar undir að það væri nauðsynlegt að breyta spurningunni og fyrir það ber að þakka. Hún er skárri en hún var upphaflega og þessi tillaga sem kom fram á fundinum, og hafði reyndar komið fram í umræðum þeirra sem eru að spekúlera í þessu, var til þess gerð að bæta gallaða spurningu og eins og ég segi, hún er skárri núna. Mér finnst svo skýrt að spyrja hvort við viljum að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið eða ekki. Ég hygg að það sé það sem þessi ríkisstjórn er að óska eftir.