157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:07]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir prýðissvar. Þetta er nefnilega mergur málsins og það ber, eins og hv. þingmaður nefndi, að þakka það að eftir ítrekaðar ábendingar og svo loks sérfræðiálit innan lands og utan lands féllst meiri hlutinn á að spurningin væri gölluð. Það má kannski segja að við höfum bjargað meiri hlutanum frá talsverðu veseni með þessari vinnu. En það er fleira sem hefur verið beðið um sem ekki hefur verið orðið við. Það komu t.d. fram spurningar á sameiginlegum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og utanríkismálanefndar sem haldinn var með Feneyjanefndinni um það sem minni hlutinn hafði verið að óska eftir, þ.e. að kalla strax eftir ákveðnum svörum frá Evrópusambandinu sem meiri hluti utanríkismálanefndar hafði ekki gefið undir fótinn að þau myndu vilja gera. Á þessum fundi, sem í það minnsta þrír í (Forseti hringir.) þessum sal sátu, hvöttu fulltrúar Feneyjanefndarinnar Íslendinga til að senda þessar spurningar bara strax út og fá svör við þeim. (Forseti hringir.) Og þá spyr ég hv. þingmann: Hvers vegna telur hún að það hafi ekki verið gert og það hafi ekki verið orðið við þeirri beiðni?