157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:08]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Ég náði ekki að fara inn í þetta varðandi tímann sem hv. þingmaður nefndi í fyrra andsvari. Ég held að það hafi verið færð mjög góð rök fyrir því að tímasetning þessarar atkvæðagreiðslu er ekki góð út frá fræðslunni og upplýsingagjöfinni, út frá því á hvaða tíma landskjörstjórn þarf að vinna það. Þetta er ekki einu sinni orðið skýrt þegar málið kemur til seinni umræðu og hvað þá að almenningur hafi annars vegar áhuga á að kynna sér það í júlí og ágúst og hins vegar að það sé tími til að vinna þá upplýsingagjöf.

Ég treysti mér ekki til að svara spurningu hv. þingmanns um hvers vegna ekki hafi verið orðið við þessari beiðni. Ég hef ekki skilning á því að í utanríkismálanefnd hafi ekki verið reynt að svara öllum þeim spurningum sem upp komu og gefa sér frekar meiri tíma en minni, sérstaklega þar sem að ég best veit voru alla vega tveir fundir felldir niður sem hefði verið hægt að nýta í upplýsingagjöf. Það er reynsla mín (Forseti hringir.) síðan ég tók sæti á þingi að það sé betra að gefa sér meiri tíma í nefndum og vinna þar vel og svara spurningum í staðinn fyrir að sú deila komi upp í þessum sal.