157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:10]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek hér til máls undir liðnum fundarstjórn forseta vegna þess að hér rétt áðan hafði hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson uppi þau orð að á fundi, sem var lokaður fundur stjórnskipulags- og eftirlitsnefndar með Feneyjanefnd, hafi einhvern veginn komið fram hvatning til þess að að utanríkismálanefnd myndi senda einhverjar spurningar til Evrópusambandsins. Ég bara kannast ekki við neitt slíkt, ekki neitt. Í fyrsta lagi fer ekki vel á því að greina frá því sem gerist á lokuðum fundum en jafnvel þótt svo væri þá bara kannast ég einfaldlega ekkert við að neitt slíkt hafi verið látið falla. Þannig að ég bara vara við því að fólk vitni í eitthvað sem var látið falla á lokuðum fundum, sérstaklega ef það á síðan ekki við nein rök að styðjast. Aldrei hefur þeim formlegu spurningum verið beint til Evrópusambandsins að kanna viðhorf þeirra til hins og þessa þannig að ég vil meina að þarna hafi hv. þingmaður verið að fara með eitthvað sem ekki átti sér stað.