þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu í síðara sinn og það er ágætt að byrja á því, með leyfi forseta, að vísa beint í hana:
„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum […]“.
Það verður að vera skýrt að eina leiðin til að hefja ekki aðlögun Íslands að ESB er að kjósa nei í lok ágúst. Annars hefst aðlögun, það stendur í þingsályktunartillögunni. Það er ágætt að það komi fram að um aðlögunarviðræður sé að ræða en að ekki sé bara verið að kíkja í einhvern pakka. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir staðfesti það í ræðu sinni þegar hún talar um óafturkræfar breytingar á íslenskri stjórnsýslu samhliða viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið; óafturkræfar breytingar á íslenskri stjórnsýslu eða aðlögun. Það er aðlögun samhliða viðræðum eins og segir í þingsályktunartillögunni, en ESB-sinnar hafa ekki viðurkennt það almennilega fyrr en nú. Það er ekki verið að kíkja í pakka, það er verið að hefja aðlögunarviðræður með öllu tilheyrandi. Í því sambandi má nefna að í gögnum ESB, um umsókn Íslands á sínum tíma, kemur fram að stjórnsýsla Íslands sé allt of lítil til að ráða við þær skuldbindingar sem fylgdu inngöngu í sambandið og mikil stofnanauppbygging þyrfti að koma til. Í andsvörum við hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur áðan hafði hv. þingmaður ekki hugmynd um þetta og áttaði sig ekki á því að stjórnsýslan á Íslandi er ekki tilbúin til að fara beint inn í Evrópusambandið án þess að það þurfi að þenja hana út. Eina leiðin til að hefja ekki aðildarviðræður er að segja nei í lok ágúst.
Virðulegur forseti. Hvar á valdið að liggja? Á síðasta orðið að vera hjá íslensku þjóðinni og íslenskum stjórnvöldum? Eða á það í auknum mæli að færast inn í stærra kerfi þar sem Ísland yrði eitt minnsta ríkið? Þetta er raunverulega spurningin sem þjóðin þarf að svara og þess vegna skiptir þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst 2026 miklu máli. Vilji menn framselja vald segja þeir já. Vilji menn ráða sínum málum sjálfir segja menn nei í lok ágúst. Það er oft talað um þessa atkvæðagreiðslu eins og hún snúist bara um viðræður, að þetta sé saklaust könnunarferli þar sem Ísland ætli bara að sjá hvað er í boði, kíkja í pakka. En þannig virka stjórnmál ekki. Engin þjóð fer í aðildarviðræður við Evrópusambandið nema vegna þess að pólitískur vilji stendur til inngöngu, að það sé meiri hluti fyrir þeim pólitíska vilja og atvinnulífið og verkalýðsfélögin standi með inngöngu. En það er ekki raunin á Íslandi, meira að segja einn stjórnarflokkurinn hefur lýst yfir andstöðu við málið, allir stjórnarandstöðuflokkarnir, verkalýðshreyfingin og svo gott sem allir sem stýra atvinnulífinu á Íslandi. En samt sem áður er farið í þessa vegferð. Þetta er ákvörðun sem er kostnaðarsöm og tímafrek og mun kosta þjóðina töluverðar upphæðir, að ekki sé talað um þann tíma sem það tekur að vera í þessari aðlögun. Aðlögunin mun taka upp tíma þegar önnur mikilvægari mál, eins og vextir og verðbólga, ættu að vera til umræðu. Það er mikilvægt að þau mál komist að, efnahagsmálin, skólamálin, heilbrigðismálin, samgöngur, og þess vegna er mikilvægt að segja nei í lok ágúst.
Virðulegi forseti. Skoðum aðeins hvaða ríki eru ekki í ESB en í Evrópu. Hver er raunveruleikinn í þessu? Noregur er ekki í ESB, Sviss er ekki í ESB, Ísland er ekki í ESB. Hvað eiga þessi ríki sameiginlegt? Þetta eru ríkustu ríki Evrópu. Bretland er ekki í ESB og Færeyjar eru heldur ekki í ESB og ekki Grænland. Þetta eru nágrannaþjóðir okkar. Þetta eru þjóðirnar, fyrir utan Sviss, sem eru í kringum okkur. Þær eru ekki í ESB. Þetta eru samfélög sem hafa ekki misst tengsl við Evrópu þrátt fyrir að vera ekki í ESB. Þetta eru ekki samfélög sem loka sig af. Þetta eru ríki sem komast að þeirri niðurstöðu að þau vilji halda ákvörðunarvaldinu hjá sjálfum sér. Ég held að Ísland ætti að vera í þeim hópi.
Maður spyr sig: Hvers vegna eru Norðmenn og Svisslendingar ekki farnir inn í Evrópusambandið ef það er eins mikið himnaríki og talsmenn ESB hér á þinginu tala um? Ég held að almenningur í þessum löndum átti sig á því að þetta eru ríkar þjóðir; þær væru að fara inn í bandalag þjóða sem margar hverjar eru langt frá því að vera eins ríkar og því yrðu þessar þjóðir nettóplúsgreiðendur inn í sambandið sem á endanum þýðir að þjóðirnar væru að byggja upp innviði annarra landa fyrir tekjur sinna landa. Hvernig hefur gengið að reka þessi ríki miðað við ríki ESB — hagvöxtur, lífsgæði? Af hverju fóru Bretar út úr ESB?
Virðulegi forseti. Svo er það gjaldmiðillinn, evran, og þar hefur mér oft þótt umræðan yfirborðskennd. Það er talað um að evran sé einhvers konar töfralausn, alla vega af sumum, kannski ekki alveg öllum, að með henni hverfi verðbólga og vextir og efnahagssveiflur hverfi eins og dögg fyrir sólu. En þannig virkar þetta ekki. Ríki innan ESB, sum hver, hafa ekki tekið upp evru. Við getum nefnt Svíþjóð, Pólland og Tékkland. Og hvers vegna hafa þessi ríki ekki tekið upp evru? Það er áleitin spurning sem við ættum að fá svar við. Eru þessar þjóðir einhvern veginn ekki í takt við Evrópu, samt í Evrópusambandinu? Hafa þær ekki fengið sömu upplýsingar og Evrópusinnar hér á Íslandi sem dásama allt við evruna?
Skoðum aðeins Svíþjóð. Svíar höfnuðu evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2003 og hafa haldið sænsku krónunni síðan. Það hefur gefið Svíum meiri sveigjanleika í hagstjórn og í fjármálakreppunni 2008 gat sænski Seðlabankinn brugðist hraðar við með eigin vaxtastefnu og gengisaðlögun sem hentaði sænska hagkerfinu. Hagkerfi Evrópu eru mörg hver ólík, og hvað þá íslenska hagkerfið með sitt auðlindadrifna hagkerfi. En með sína sænsku krónu hefur Svíþjóð verið eitt af sterkustu hagkerfum Evrópu, með hátt atvinnustig, sterka nýsköpun, öflugan útflutning og sterkan iðnað og tæknifyrirtæki. Pólland — Pólverjar eru með z?oty, þeir eru ekki með evru. Hvernig hefur það gengið? Þeim hefur gengið mjög vel í efnahagslegum samanburði og Pólland var eina hagkerfi ESB sem ekki fór í samdrátt í fjármálakreppunni 2008 og 2009. Margir telja að þar hafi eigin gjaldmiðill Póllands hjálpað til við að aðlagast áfallinu, aðlagast pólskum aðstæðum. Það er ekki tilviljun að þjóðir hafa verið með sína gjaldmiðla. Pólland hefur síðan vaxið hratt. Þar hafa lífskjör aukist mikið. Öflugur iðnaður hefur byggst upp og þar er töluverð erlend fjárfesting, það er orðið mikilvægasta hagkerfi fyrrum austurblokkarinnar. Pólverjar hafa reglulega frestað upptöku evru þrátt fyrir að vera stórt ESB-ríki. Ástæðan er einföld. Margir telja að eigin gjaldmiðill sé gott hagstjórnartæki og mikilvægt öryggistæki.
Þriðja ríkið sem ég nefndi hér áðan: Tékkland, það er áhugavert dæmi. Þeir hafa sterkan útflutningsiðnað, sérstaklega tengdan Þýskalandi, og eru mjög samþættir inn á markaði ESB. Samt hafa þeir ákveðið að halda tékknesku krónunni. Tékkneski seðlabankinn hefur verið mjög virkur í sjálfstæðri peningastefnu og Tékkar hafa ítrekað frestað upptöku evru. Ástæðurnar sem Tékkar nefna eru að halda sveigjanleika í tékkneska hagkerfinu innan Evrópusambandsins. Allir hagfræðingar vita að það er mikilvægt að halda sveigjanleika. Tékkar óttast að missa stjórn á vaxtamálum og evrukreppan 2010 hræðir þá. Tékkland hefur almennt verið með lágt atvinnuleysi, sterkan iðnað, góðan hagvöxt og tiltölulega stöðug fjármál. Og gleymum því ekki að íslenska krónan hefur staðið sig betur en flestir gjaldmiðlar árum saman. En gjaldmiðill er ekki bara greiðslumiðill, hann er hluti af sjálfstæði ríkis og hluti af því hvernig ríkið bregst við áföllum. Við á Íslandi, á eyju hér úti í Norður-Atlantshafi — í mjög auðlindadrifnu hagkefi og byggjum á ekkert allt of mörgum stoðum — erum útsettari fyrir miklum sérstökum áföllum sem Evrópa er ekki útsett fyrir. Hvað gerist ef loðnan bregst? Það er áfall fyrir Ísland en ekki fyrir Evrópu. Stórt eldgos hefur áhrif á ferðaþjónustu og innviði en það er ekki efnahagsáfall fyrir Þýskaland. Ef fiskverð fellur þá bregst Ísland öðruvísi við en meginland Evrópu og þess vegna er mikilvægt að hafa eigin gjaldmiðil og geta brugðist við hagsveiflum. Krónan er ekki fullkomin og það kostar að hafa hana. En hún kemur t.d. í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi eða minnkar líkur á því og gerir okkur kleift að rísa hraðar úr kreppu eins og dæmin sanna í kringum fjármálakreppuna og hrunið. Þar voru að sjálfsögðu aðrir ytri þættir sem hjálpuðu líka til, svo sem eldgosið í Eyjafjallajökli.
Virðulegi forseti. Við þurfum ekki að velta því fyrir okkur í fræðibókum hvort sameiginlegur gjaldmiðill geti skapað vanda. Við höfum séð það gerast. Evrusvæðið fór í gegnum skuldakreppu, bankakreppu og djúpa samfélagslega spennu. Þá kom í ljós hvað gerist þegar ólík hagkerfi eru bundin saman í eina peningastefnu. Þau ríki gátu ekki brugðist við hvert á sinn hátt. Grikkland varð táknmynd þessa. Auðvitað er Ísland ekki Grikkland en málið er það að þegar ríki missa eigin gjaldmiðil þá missa þau sveigjanleika, þau missa hæfni til að aðlagast. Þá lendir höggið annars staðar og það sást í fjármálakreppunni, í atvinnuleysi, í hrottalegum niðurskurði og lægri lífskjörum. Menn rísa hægar upp úr sveiflum þegar menn hafa ekki stjórn á sínum gjaldmiðli. Og þetta er raunverulegt dæmi frá Evrópu úr fjármálahruninu.
Virðulegur forseti. Það er líka merkilegt hvernig menn tala um Evrópusambandið í einhvers konar draumsýndarveruleika, að þar séu lágir vextir og allt í sómanum. Maður gæti haldið að Evrópa væri að hlaupa fram úr öllum heiminum og við værum að dragast aftur úr af því að við erum ekki í ESB. En svo lesa menn skýrslurnar frá Evrópusambandinu sjálfu. Hver er staðan? Við erum ekki að leita að fagurgala þeirra sem vilja ganga inn heldur raunverulegri stöðu. Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóri Evrópu, var fenginn til að fara yfir stöðu samkeppnishæfni í Evrópu. Niðurstaðan var ekki fögur. Evrópa er að dragast aftur úr Bandaríkjunum og Asíu í framleiðni, fjárfestingu og nýsköpun. Regluverkið er orðið þungt, ákvarðanatakan hæg enda boðleiðir langar og flóknar og fjárfestingar ekki nægar. Menn fjárfesta ekki í hagkerfum sem eru ekki í vexti, eða menn fjárfesta a.m.k. síður í þeim, þegar menn hafa aðgang að öðrum hagkerfum. Og það eru ekki einhverjir einstaklingar eða jaðarhópar sem eru að ræða þetta heldur kemur þetta úr kerfinu sjálfu. Þá hljótum við að spyrja: Af hverju erum við Íslendingar að tala um að ganga í ESB eins og það sé einhvers konar draumaheimur? Raunveruleikinn er auðvitað sá að Evrópusambandið glímir við risastór vandamál alveg eins og önnur stór stjórnmálakerfi.
Og skoðum aðeins burðarásana, risana, í Evrópu. Frakkland ver 14–15% af vergri landsframleiðslu í opinber lífeyriskerfi sem er það hæsta í heiminum á meðan opinberar skuldir ríkisins eru komnar upp í 115% af landsframleiðslu. Frakkland riðar svo gott sem á barmi gjaldþrots. Þýskaland er með skuldir upp á um 63–64% af vergri landsframleiðslu en þar hefur hlutfall vinnandi fólks á móti hverjum lífeyrisþega fallið frá sjöunda áratugnum úr sex á móti einum, þ.e. sex vinnufærir fyrir hvern lífeyrisþega, niður í tvo fyrir hvern lífeyrisþega í dag. Þetta hefur sett gríðarlegan þrýsting á kerfið næstu áratugi, svo að ekki sé rætt um orkukreppuna í Þýskalandi, sem er veruleg, og orkuverð. Menn tala mikið um lága vexti í Evrópu, að það sé draumalandið að vera í lágvaxtaumhverfi Evrópu. Og hvers vegna eru lágir vextir í Evrópu? Hver er skýringin á því? Hún er ekki neitt ofboðslega flókin. Þar er lítill hagvöxtur, miklar skuldir ríkjanna, samfélögin eru orðin öldruð, margir lífeyrisþegar per vinnandi fólk, dræm framleiðni og kerfisvandi innan svæðisins. Hvað erum við eiginlega að hugsa?
Virðulegur forseti. Það er gömul en sönn hugsun í stjórnmálaheimspeki að vald eigi að vera nálægt fólkinu. Við eigum ekki að þurfa að fara í gegnum Pétur og Pál til að komast að einhverjum sem hefur völdin. Franski heimspekingurinn Montesquieu skrifaði að frelsi væri m.a. byggt á því að vald væri ekki of fjarlægt almenningi, að fólk gæti skilið kerfið sem stjórnaði því. Það er mikilvægt. Ætli kerfið sé auðskildara ef við erum með þing hér sem er með full völd frekar en að þurfa að keyra allt okkar í gegnum Brussel? Þetta er ekki úrelt sjónarmið. Almenningur kallar eftir að valdið sé honum nærri. Þetta kemur ítrekað fram. Því stærra sem kerfið verður því fjarlægari verður ákvörðunin og því minni áhrif finnst okkur við hafa á samfélag okkar og þar með veikist lýðræðið. Það er óljósara hver ber ábyrgð þegar valdið er í raun langt í burtu og flækjustigið er meira. Við skulum ekki gera lítið úr þessu. — Tími minn styttist óðfluga en ræðan er langt frá því að vera búin. Ég ætla að hlaupa aðeins yfir nokkra kafla hér.
Virðulegur forseti. Að lokum snýst þetta um eitt orð sem framsalsmenn eru stundum feimnir við að nota. Það er fullveldi. Stundum er talað um fullveldi eins og það sé bara eitthvert tilfinningamál, einhver þjóðernisrómantík. Fullveldi þjóðar er fjöregg hennar og ætti að gæta að því og það á ekki að framselja. Fullveldi er rétturinn til að taka eigin ákvarðanir og bera ábyrgð á þeim. Við eigum að vinna með Evrópu, eiga viðskipti við Evrópu. Við eigum að taka þátt í vísindum, menningu og öryggissamstarfi en ekki útvista ákvarðanatöku til skriffinna í Brussel. Það verður kosið um það hvort Ísland eigi að leggja af stað inn í ferli sem leiðir til þess að meira vald færist frá íslensku þjóðinni. Eina leiðin til að halda aftur af bákninu og hefja ekki aðlögun í haust er að kjósa með Íslandi; kjósa með hagsæld og auknum lífskjörum fyrir komandi kynslóðir, fórna ekki baráttu forfeðra okkar fyrir tálsýn. Þess vegna er mikilvægt að standa með lýðræðinu og segja nei í haust.