157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ræðu og langar að spyrja spurningar, sem ég hef stundum spurt hér, hvort hann telji að Þýskaland sé fullvalda ríki eða ekki. Mig langar líka að spyrja hv. þingmann, ef ég tek hans röksemdafærslu, hvort það sé ekki bara nærtækast að ganga úr EES-samstarfinu. Ég spyr í fullri einlægni vegna þess að rökin sem þingmaðurinn færir eru þau að það sé vont að hafa vald langt frá sér. Við eigum að hafa áhrif á þau lög sem við setjum. Samkeppnishæfni Evrópu er að drabbast niður. Ef við myndum ganga úr EES þá gætum við ráðið okkar lögum sjálf, þyrftum ekkert að taka við neinum af þessum sendingum frá Brussel. Við gætum kannski tekið upp eitthvað sem okkur líkar vel við en þyrftum ekki að taka upp GDPR eða allar þessar reglugerðir sem eru að koma til okkar. Ef samkeppnishæfni Evrópu og ESB er vandamál þá hlýtur stór hluti þess vanda að vera þegar kominn fram í okkar eigin lagaumhverfi vegna þess að við erum að langstærstum hluta aðilar að því sem snýr að innri markaðnum. Ég sé ekki endilega fyrir mér að það sé samstarf Evrópu í menntamálum eða varnarmálum eða þátttaka á Evrópuþinginu eða neitt af því sem hefur áhrif á samkeppnishæfni okkar. Öll þau lög sem við höfum tekið upp í gegnum EES-samstarfið hljóta að hafa áhrif á okkar samkeppnishæfni. Ef við eltum röksemdafærslu hv. þingmanns um að það sé gott að hafa valdið sem næst, að stjórna eigin málum, að samkeppnishæfni Evrópu sé á niðurleið vegna þessara laga sem þar eru sett þá spyr ég: Er þá ekki bara best og hreinlegast að ganga úr EES-samningnum og taka bara upp þau lög sem við fílum þaðan? Það hlýtur að vera miklu betra því þá er valdið nær fólkinu.