157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:34]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Já, Þýskaland er fullvalda ríki en Þýskaland hefur á síðustu árum tekið margar rangar ákvarðanir sem hafa valdið því að ein sterkasta stoðin innan ESB — og ESB er náttúrlega bara aðildarríkin, það er ekkert annað. Þýskaland hefur tekið þær ákvarðanir að loka kjarnorkuverum og treysta á orku frá Rússlandi. Þjóðverjar hafa tekið við óhemjumagni af flóttamönnum sem þeir ráða ekkert við. Staðan í Þýskalandi er ekki góð þrátt fyrir að Þýskaland sé fullvalda ríki. En það sem hv. þingmaður nefnir hér með EES-samninginn þá er hann ekki innganga í ESB. Hann veitir okkur aðgang að mörkuðum innan sambandsins. Við getum gert ótal aðra fríverslunarsamninga hingað og þangað um heiminn og eigum samninga við fjölda ríkja um fríverslun. Þeir samningar væru allt öðruvísi ef við værum í ESB og það væri þá ákveðinn skaði þar. Ef við gengjum í ESB, ætlar ESB þá með sinn máttlausa hernaðarmátt að verja Ísland? Ég sé ekki nokkuð í þessu sem hv. þingmaður segir að tengist minni röksemdafærslu. Við erum á góðum stað með EES-samninginn. Við erum með alla möguleika opna. Við myndum loka möguleikum með því að ganga inn í sambandið. Í stað þess að hafa alla möguleika opna og nýta það besta frá þeim sem við getum átt viðskipti við værum við að tengja okkur inn í samband sem stendur á hálfgerðum brauðfótum.