157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum nú ekki með alla möguleika opna. Ég meina, við tökum upp nánast allar reglur í Evrópusambandinu varðandi fjármálakerfi, GDPR-persónuverndarlöggjöfina og ótal hluti sem við getum ekki haft eins og við viljum. Við höfum ákveðið að fylgja þeim reglum. Ég spurði bara og ég er ánægður með að hv. þingmaður ljái ekki máls á því að ganga úr EES-samstarfinu vegna þess að þar erum við sama sinnis. Ég vil hins vegar segja að ef rökin hans eru alltaf þau að það sé alltaf best að valdið sé sem næst fólkinu, þá væru það auðvitað rök fyrir því að endurskoða það samband.

Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann um þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram undan er. Ég er aðeins að reyna að átta mig á afstöðu Sjálfstæðisflokksins ef hv. þingmaður hlustar á mig en ekki sinn ágæta félaga, Guðlaug Þór Þórðarson. (Gripið fram í.) Sjálfstæðisflokkurinn kemur hér fram með breytingartillögu þess efnis að það eigi að kjósa 17. október með aðeins öðruvísi orðalagi og að samningsmarkmiðin eigi að liggja fyrir. Gott og vel. Með þeirri breytingartillögu leggur Sjálfstæðisflokkurinn til, eða fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, að þessi tillaga verði samþykkt. Mig langar bara að hv. þingmaður svari mér því ég hef ekki náð að spyrja fulltrúa í minni hlutanum því að það voru svo margir aðrir stjórnarandstæðingar áhugasamir um að ræða við hann: Ef fallist yrði á allar þessar breytingar, ef dagsetningin yrði færð, spurningunni yrði breytt og samningsmarkmið kæmu fram mánuði fyrir kosningarnar, myndi hv. þingmaður þá kjósa með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu hér í þingsal og myndi hann þá telja sig skuldbundinn niðurstöðunni til frambúðar? Ef hann myndi síðan enda í ríkisstjórn eftir næstu kosningar í einhverri annarri samsetningu — ef niðurstaðan yrði já, myndi hann þá telja sig skuldbundinn af því að fara til Brussel og ná í góðan samning fyrir Íslands hönd byggðan á þeim samningsmarkmiðum sem sett hefðu verið fram?