þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir afbragðsandsvar og ágætistækifæri fyrir mig hér til að skýra frá því að það sem stóð í þessu skjali sem hv. þingmaður las upp eru mistök í skjalavinnslu. Ég geri mér grein fyrir því að hv. þingmaður er afvegaleiddur með þessu; þetta er sem sagt ekki það sem sent var inn frá Sjálfstæðisflokknum. Þetta voru mistök í skjalavörslu, það eru upplýsingarnar sem ég hef núna. Hv. þingmaður spyr hvort ég myndi fylgja þjóðarvilja. Ef ég hefði lagt það undir þá segði ég já við því, ég myndi fylgja honum eftir en ég færi fljótlega í það að reyna að koma okkur frá því sambandi með lýðræðislegum hætti. En til að halda því á hreinu með allt sem við innleiðum frá Evrópusambandinu þá eru það bara 13,5% af regluverki sambandsins sem við erum með. Menn tala stundum fjálglega um að það séu 80–90%, en það er ekki rétt, bara til að halda því til haga.
Síðan voru fleiri spurningar frá hv. þingmanni. Getur hann rifjað upp (Gripið fram í: Ef breytingartillagan yrði samþykkt. ) — já, breytingartillagan með mistökunum úr skjalavinnslunni? Ég myndi sem sagt ekki — er hv. þingmaður að tala um breytingartillögu Sjálfstæðisflokksins?
(Forseti (EÁs): Ekki er heimilt að halda uppi samtali við ræðumann í ræðustól.)
Ég myndi vilja að atkvæðagreiðslunni yrði frestað þannig að við hefðum tíma til að ræða það eins og við erum að gera núna, sem er bara ágætissamtal. Ég held að þjóðin eigi það skilið að allar upplýsingar komi upp á yfirborðið áður en hún kýs um það hvort hún vilji fara í aðlögunarviðræður við (Forseti hringir.) Evrópusambandið. Ég held að það sé sanngjarnt og eðlilegt. En ég fagna því að kosið verði um þetta og þá verði það vonandi gert í eitt skipti fyrir öll.